Binni í Vinnslustöðinni - Að vaða elg og hóta VSV
9. mars, 2017
Til allrar lukku er Kristinn H. Gunnarsson ekki húsasmiður því þá myndi hann lesa sentimetra og tommur til skiptis af mælistokknum sínum, allt eftir því hvað honum þætti henta hverju sinni í sama verkinu. Hætt er við að húsin hans yrðu fyrir vikið ekki endilega hornrétt og innréttingar myndu hvergi passa í ætluð rými. Mælikvarðar eru nauðsynlegir en það verður að kunna að brúka þá.
Í Fréttablaðinu 2. mars víkur Kristinn að skrifum mínum í sama blaði 28. febrúar og ruglar saman framlegð (EBITDA), framlegðarhlutfalli og rekstrarafgangi í skattaspori KPMG.
Í fyrsta lagi er Kristinn H. í málflutningi sínum á svipuðum slóðum og til dæmis Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, sem aldrei skildi mun á hagnaði og framlegð frekar en svo margir stjórnmálamenn. Frá framlegð dragast fjármagnskostnaður, skattar og gjaldfærðar afskriftir og þar kemur hagnaðurinn sem fellur í hlut hluthafa og nýtist til afborgana lána, nýfjárfestinga eða útgreiðslu arðs. �?etta ætti maður með mikla reynslu í stjórnmálum og störfum Alþingis og stjórnsýslu að vita. Á vefjum DV og BB má sjá að Kristinn hafi numið hagfræði og stjórnmálafræði að þingmennsku lokinni, auk BS-náms í stærðfræði í HÍ á yngri árum. �?ess vegna verður að ætlast til þess að hann skilji lykilhugtök og beri saman sambærilegar tölur!
Hvort Vinnslustöðin er vel eða illa rekin skiptir engu máli í þessari umræðu en að gefnu tilefni má nefna að á dögunum lýsti Creditinfo hana fyrirmyndartæki, þriðja árið í röð. Árið 2016 var Vinnslustöðin í 35. sæti best rekinna fyrirtækja landsins af alls 35.000 fyrirtækjum sem Creditinfo kannaði. Creditinfo gerir strangar kröfur í mati sínu og færir rök fyrir niðurstöðum en Kristinn H. veður elg í eigin orðaleppum.
Í öðru lagi nýtir Kristinn hlutfallstölur frá Hagstofu Íslands um uppsjávarveiðar og vinnslu sem honum þykir sér henta. Upplýsingar Hagstofu Íslands byggjast á úrtakstölum um sjávarútveg, þar á meðal frá Vinnslustöðinni. Hann talar annars vegar um hreinan hagnað, sem er reiknuð stærð hjá Hagstofunni, og hins vegar um framlegð sem byggist á upplýsingum frá hluta sjávarútvegsfyrirtækjanna eftir því hvað á við hverju sinni. Á þessu tvennu er mjög mikill munur. Hann nefnir árið 2015 sem dæmi um góða afkomu uppsjávarveiða þar sem framlegð var 21,5% en lætur hjá líða að geta um að þá var hreint tap 0,2%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.
Gögn Hagstofunnar eru sem slík góð til síns brúks en sjálf hefur hún reyndar lýst efasemdum um að eigin gögn geti verið grundvöllur skattlagningar í sjávarútvegi.
Skilja ekki mikilvægi loðnuleitar
Í þriðja lagi greinir Kristinn ekki þann kjarna í grein minni að hvorki framkvæmdarvaldið né Alþingi, og augljóslega ekki Kristinn H. Gunnarsson sjálfur, skilja mikilvægi loðnuleitar og grunnrannsókna á sjávarauðlindinni. �?g benti á að loðnuleitin var fjárhagslega á ábyrgð loðnuútgerðanna af því að ríkisvaldið vildi ekki verja 20-40 milljónum króna í verkefnið. Loðnan sem fannst skilar ríki og sveitarfélögum 3,3 milljörðum króna í beinar tekjur sem sjávarútvegurinn stendur skil á, ef miðað er við �??speglun�?? skattaspors KPMG fyrir Vinnslustöðina yfir á loðnuvertíðina, og miklum óbeinum tekjum að auki. Mér kæmi ekki á óvart að hátt í 10 milljarðar króna rynnu í ríkiskassann af alls 17 milljörðum sem loðnuvertíðin skilar.
Í fjórða lagi hlýtur Kristinn að átta sig á að skattaspor félags fyrir rekstrarár getur ekki átt við eina vertíð sem stendur yfir í einn mánuð. Á sama hátt hlýtur hagfræðineminn að átta sig á að ef ekki hefði komið til þessara tekna af loðnuveiðum í ár hefði skattaspor Vinnslustöðvarinnar og sjávarútvegsins í heild verið mun minna. Hér liggur líka munur annars vegar á þeirri hugsun heilbrigðrar skynsemi að tekna sé aflað í þjóðarbúið og kakan stækkuð öllum til hagsbóta en hins vegar á þeirri fásinnu og þráhyggju sósíalískrar hugsunar og þekkingarleysis að tekjur verði aðallega til með sköttum.
Í fimmta og síðasta lagi þakka ég Kristni H. fyrir hreinskilnina ­í nafni hluthafa, starfsmanna og viðskiptavina Vinnslustöðvarinnar og Eyjamanna yfirleitt. Hann hótar því undir rós að taka af okkur lífsbjörgina, atvinnuna sjálfa. Kjarninn í málflutningi hans og annarra uppboðssinna á opinberum vettvangi er einmitt sá að bjóða skuli fólk og fyrirtæki í sjávarútvegi reglulega upp líkt og gert var með niðursetninga í sveitum fyrr á öldum.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.