Maud loksins á leiðinni heim
Norski dráttabáturinn Tandberg polar dregur Maud til heimahafnar í Noregi.

Það ráku margir upp stór augu á bryggjunni nú í morgunsárið við þessa sjón. En hér er á ferðinni skipið Maud sem norski landkönnuðurinn Roald Armundsen sigldi frá Noregi yfir Norðuríshaf.

POLAR SHIP “MAUD” Photo: Galleri NOR, Anders Beer Wilse, 7. mars 1918.

Skipið var byggt fyrir Roald árið 1917 skömmu áður en hann hélt í sinn annan rannsóknaleiðangur norður á bóginn. Sigldi hann svokallaða norðausturleið, milli Atlantshafs og Kyrrahafs, þar sem stærstur hluti leiðarinnar er um ísilagt Norðuríshafið.

Leiðangrinum lauk árið 1924 og dagaði skipið uppi í Alaska og var ári síðar selt sem úr þrotabúi Armundsen. Það var síðan nýtt sem flutningaskip eftir norðurströnd Bandaríkjanna og Kanada. Í framhaldinu var það nýtt sem geymslurými auk þess að hýsa útvarpsstöð allt þar til Maud sökk árið 1930 við norðurströnd Kanada.

Skipið lá á hafsbotni næstu 85 árin en var svo dregin á flot árið 2016 og ákveðið að koma því heim til Noregs.

Á leiðinni heim. Mynd: www.maudreturnshome.no
Á leiðinni heim. Mynd: www.maudreturnshome.no

Jan Wanffaard, sem stýrir leiðangrinum, sagði í viðtali á RÚV, það góða tilfinningu að ferja skipið heim. „Mér finnst sem að Maud sé Amundsen. Hann hefur verið á burt, hann hvarf. Og nú heldur hann heim á leið. Svo einfalt er það. Mér finnst að Amundsen fái þarna endurheimt orðsporið vegna þess sem gerðist undir lok ævi hans. Ég vona að Norðmenn taki þessu höndum tveim.“

Myndirnar hér að neðan tók Óskar Pétur af Maud við Bryggju nú í morgun.

Fyrir áhugasama má svo lesa frekari upplýsingar um verkefnið og sögu skipsins í blaði sem gefið var út um verkefnið.

Nýjustu fréttir

Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.