
Bergur- Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, gerir út togarana Vestmannaey VE og Bergey VE. Viðhaldsstjóri fyrirtækisins er Guðmundur Alfreðsson en hann er mikill áhugamaður um flug, hefur flugréttindi og á að baki um 1.600 flugtíma. Guðmundur á hlut í fisvél og eins flýgur hann vél af gerðinni Piper Warrior. Guðmundur segir að flugvélin komi oft að góðu gagni þegar hann þurfi að komast upp á land. „Ég nota flugvélina töluvert í mínu starfi. Það tekur mig einungis um 5 mínútur að fljúga upp á Bakka og þar hef ég bíl sem ég get síðan farið á áfram. Eins flýg ég töluvert á Selfoss en það tekur mig um 20 mínútur. Ég lærði að fljúga 1984 og síðan má segja að flugvélin hafi oft verið minn þarfasti þjónn,“ segir Guðmundur.

Síðastliðin fimmtudag kom flugvélin í góðar þarfir. Vestmannaey var að landa í Eyjum og þá kom í ljós að síðuloki í skipinu var bilaður. Engan slíkan loka var að fá í Eyjum og hafði Guðmundur þá samband við fyrirtækið Set á Selfossi og kom strax í ljós að þar var til loki. Guðmundur samdi við starfsmann hjá Set um að hann yrði kominn með lokann út á Selfossflugvöll eftir 20 mínútur. Þvínæst settist hann upp í flugvélina og það stóð heima að flugvélin lenti á flugvellinum um líkt leyti og starfsmaðurinn kom þangað með lokann. Síðan var flogið rakleiðis til Eyja með lokann og hann settur í skipið. „Það tók einungis um klukkustund að útvega skipinu nýjan loka og vegna þess að unnt var að fljúga og sækja hann tafðist það ekkert frá veiðum. Þetta sýnir vel að það getur borgað sig að hafa flugvél við hendina í Vestmannaeyjum þegar upp koma tilvik sem þetta,“ segir Guðmundur.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.