Sunnudaginn 18. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður til þessarar athafnar í sjöunda sinn og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Þóranna M. Sigurbergsdóttirmun segja sögu sína í athöfnini, en hún missti son sinn, Sigurjón Steingrímsson, aðeins 17 ára gamlan í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni árið 1996. Sigurjón hefði orðið 40 ára þennan dag, 18. nóvember.
Í ár munum við leggja áherslu á aðstandendur og þau miklu áhrif sem slys hafa á þá. Um það bil 4.000 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Enn fleiri þurfa að takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af völdum þessa. Segja má að allir upplifi með einum eða öðrum hætti afleiðingar umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni.
Minningarathöfn
Athöfn verður við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík sem hefst klukkan 11. Allir eru hvattir til að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber í umferðinni. Dagurinn er ekki aðeins tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur skapast sú venja hér á landi að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Eru þessum starfsstéttum færðar þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra. Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.
DAGSKRÁ:
15:45 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
16:00 Stjórnandi athafnarinnar setur samkomuna.
16:05 Samgöngu – og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
16:15 Mínútu þögn.
16:16 Þóranna M. Sigurbergsdóttir segir sögu sína en hún missti son sinn, Sigurjón Steingrímsson, aðeins 17 ára gamlan í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni árið 1996. Sigurjón hefði orðið 40 ára þennan dag, 18. nóvember.
16:26 – 16:30 Stjórnandi segir athöfninni formlega lokið.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.