Skrifað var undir samninga við tvo leikmenn sem munu ganga í raðir ÍBV fyrir næsta tímabil og spila með meistaraflokki karla.
Jonathan Glenn skrifaði undir samning við ÍBV sem gildir út árið 2020. Glenn kom fyrst til félagsins árið 2014 og fór héðan til Breiðabliks, hann spilaði hjá Fylki á nýafstöðnu tímabili þar sem hann lét 14 leiki og skoraði 7 mörk. ÍBV bindur miklar vonir við þennan markaskorara.
Einnig hefur ÍBV samið við Rafael Veloso til tveggja ára, Rafael er 25 ára markmaður frá Portúgal. Hann ólst upp í Sporting akademíunni, og á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Portúgal. Við erum spennt fyrir komandi tímabili og er Rafael mikill styrkur fyrir lið ÍBV.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.