Til hamingju með 100 ára afmælið!
OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Upphaf búsetu í Vestmannaeyjum má rekja langt aftur; að sumra mati lengra aftur í sögunni en nokkurs annars staðar á Íslandi með komu Papanna frá Írlandi. Hér í Eyjum er einnig talinn hafa verið elsti þéttbýlisstaður landsins.

Hinn 18. ágúst árið 1786 fengu sex staðir kaupstaðarréttindi í fyrsta sinn sem þau voru veitt á Íslandi og voru Vestmannaeyjar einn þeirra. Rúmum 20 árum seinna, í apríl 1807, misstu Vestmannaeyjar þessi réttindi en fengu þau endanlega aftur 22. nóvember árið 1918. Þá staðfesti konungur lög frá Alþingi um kaupstaðarréttindi fyrir Vestmannaeyjar, sem öðluðust gildi 1. janúar 1919. Sá dagur telst því vera stofndagur Vestmannaeyjabæjar.

Það er merkilegt að yfirskriftin á þessari lagasetningu er Lög um bæjarstjórn Vestmannaeyja en ekki Lög um kaupstaðarréttindi. Ástæðan er vitaskuld sú að réttindin sem Vestmannaeyingar öðluðust á nýársdag 1919 var rétturinn til að ráða eigin málum eða eins og það er orðað í lögunum: „Bæjarstjórnin stýrir málefnum kaupstaðarins“. Kosið var um nýja bæjarstjórn strax 16. janúar og fyrsti fundur hennar var haldinn 14. febrúar í Borg sem stóð neðst við Heimagötu og fór undir hraun.

Í dag er því 100 ára afmæli bæjarins okkar. Þess verður minnst með margvíslegum hætti á árinu sem nánar verður auglýst síðar. Eiginlegur afmælishátíðardagur verður föstudagurinn 5. júlí.

Fyrsta dagskrá ársins verður í dag, 1. janúar, á 100 ára afmælisdaginn sjálfan. Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs, opnar sýningu á heildarsafni Vestmannaeyjabæjar á málverkum Jóhannesar Kjarvals, samtals 37 verk. Sýningin verður opnuð í Safnahúsinu kl. 13:00 og lýkur kl. 17:00 og stendur aðeins þennan eina dag.

Ég óska öllum íbúum þessa 100 ára gamla bæjar gleðilegs og farsæls afmælisárs!

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri.

Nýjustu fréttir

Mæðradagurinn haldinn hátíðlegur í Landakirkju
Bókunarkerfið enn niðri – Herjólfur birtir siglingaáætlun laugardagsins
Hvatningarverðlaun afhent og styrkir veittir til skólaþróunar
Vegagerðin með opinn fund um Land­eyja­höfn
Agnes Lilja og Klara í lokahóp u-18
Víkin heimsótti Vinnslustöðina
Herjólfur: Áætlun föstudagsins gefin út
ÍBV biðst afsökunar á ummælum í garð Hafdísar
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.