Góðum aflabrögðum fagnað með kökum og kruðeríi
Mynd: Vsv.is

Áhafnir þriggja skipa Vinnslustöðvarinnar fengu um helgina gott með kaffinu um í tilefni af góðum aflabrögðum frá áramótum. Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfisksviðs Vinnslustöðvarinnar, mætti um borð með kökur, kruðerí og þakkir frá fyrirtækinu.

Áður hefur hér á þessum vettvangi verið greint frá fádæma góðum afla Breka VE í marsmánuði. Hann er í hópi aflahæstu togara landsins og aflasamsetningin er mun fjölbreyttari en hjá viðmiðunarskipunum.

Önnur botnfiskskip Vinnslustöðvarinnar hafa líka aflað vel á vertíðinni.

Brynjólfur VE hefur fært yfir 1000 tonn að landi frá áramótum. Hann hóf vertíðina á fiskitrolli en skipti yfir á net um miðjan febrúar.
Kap II VE hefur aflað yfir 850 tonn frá því í lok janúar. Skipið var frá veiðum vegna mikilla endurbóta í desember og fyrstu vikum nýs árs en hóf veiðar á þorskanetum í lok janúar.
Drangavík VE er komin með 1300 tonn frá því í janúar; þorsk, ýsu, ufsa, skarkola og fleiri tegundir.
„Áhafnir á skipum félagsins hafa skilað miklum verðmætum á land á fyrsta fjórðungi ársins. Full ástæða var til að halda upp á það með þeim um helgina með kökum og kátínu!“ segir Sverrir Haraldsson.

Nýjustu fréttir

Verulegur munur á tilboðum í flóðlýsingu Hásteinsvallar
Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.