Yfirlýsing frá Sea Life Trust
belugas
Mjaldrarnir í Klettsvík. Aðsend mynd

Ég skrifa fyrir hönd SEA LIFE TRUST Beluga Whale Sanctuary til að lýsa eindregnum mótmælum okkar að fyrirhugaðri byggingu stórskipahafnar beint á móti Klettsvík. Sem stofnun, sem er tileinkuð velferð Mjaldra, höfum við miklar áhyggjur af hugsanlegum skaðlegum áhrifum sem þessi þróun myndi hafa á griðastað okkar og nágranna umhverfi.

Bygging og rekstur stórskipahafnar í svona mikilli nálægð við Klettsvík myndi hafa í för með sér verulega hættu fyrir svæðið og Mjaldrana sem þar dvelja. Truflun og hávaði sem koma munu til með að myndast á byggingartímanum myndi raska kyrrðinni og umhverfinu sem er nauðsynlegt fyrir vellíðan Litlu Hvít og Litlu Grá.

Stór flutningsskip og önnur skip sem koma til með að leggja að bryggju nálægt griðarstaðnum mun leiða til áframhaldandi truflana og skerða getu stofnuninnar til að veita systrunum öruggt og friðsælt heimili. Þar að auki myndi fyrirhuguð staðsetning hafnarinnar hafa mikil áhrif á vatnsgæðin í kringum svæðið, sem er alvarleg ógn við heilsu og öryggi hvalanna. Hætta á olíuleka í tengslum við siglingastarfsemi myndi enn frekar stofna lífi Mjaldrana og starfsemi okkar í hættu.

Ennfremur er mikilvægt að huga að þeim umtalsverðum fjármunum og fjárfestingum sem gerðar hafa verið í stofnun Beluga Whale Sanctuary, þar á meðal milljarða íslenskra króna sem verið hafa verið varið til að styðja við fyrirtæki í heimabyggð og haldið þannig uppi atvinnustarfsemi í Vestmananeyjum.

Fyrirhugaðar framkvæmdir stórskipahafnar á þessu svæði myndi grafa undan þessum fjárfestingum og stofna efnahagslífinu í hættu, kostum sem stofnunin færir samfélaginu. Í ljósi þessara áhyggjuefna hvetjum við hafnarstjórn Vestmannaeyja til að endurskoða fyrirhugaða staðsetningu skipahafnar og kanna aðra staði sem myndu lágmarka áhrifin og umhverfisrask. Við teljum að nauðsynlegt sé að forgangsraða og vernda náttúruauðlindir eins og Klettsvík og Beluga Whale Sanctuary.

Við höfum skuldbundið okkur til að vinna að lausn sem tryggir langtíma sjálfbærni bæði á griðasvæði mjaldranna og nærliggjandi umhverfi.

Við kynnum að meta athygli ykkar á þessu máli og biðjum um tækifæri til frekari aðgerða, ræða áhyggjur okkar og kanna aðrar lausnir.

 

Virðingafyllst

Graham McGrath
Framkvæmdarstjóri Sea Life Trust

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.