VSV: Framkvæmdir í fullum gangi
vsv_framkv_0324_hbh
Vinnubúðir Vinnslustöðvarinnar neðst á myndinni. Mynd/HBH

Miklar framkvæmdir standa yfir hjá Vinnslustöðinni. Til að hýsa alla iðnaðarmenn sem að verkunum koma var brugðið á það ráð að reisa vinnubúðir á Lifrasamlagslóðinni sunnan við Vinnslustöðina.

Framkvæmdir hófust í haust við nýtt tveggja hæða steinhús á tveimur hæðum á Vinnslustöðvarreitnum, alls um 5.600 fermetra, sem í verður saltfiskvinnsla á neðri hæð og innvigtun uppsjávarafla á efri hæð.

Nýbyggingin verður L-laga, að hluta í gamla þróarrýminu sem snýr út að Hafnargötu í krikanum þar sem er aðalinngangur VSV. Stefnt er að því að saltfiskvinnsla hefjist í nýja húsinu á vetrarvertíð 2025.

Fram kom í umfjöllun um framkvæmdirnar á vef Vinnslustöðvarinnar sl. haust að T.ark arkitektar í Reykjavík sjái um hönnun nýja hússins, en Eykt ehf. er aðalverktaki. Eykt er öflugt þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaði og hefur annast stórframkvæmdir fyrir Vinnslustöðina undanfarin ár við nýja uppsjávarhúsið, tengibygginguna, mjölhúsið og frystigeymsluna á Eiði.

Halldór B. Halldórsson gerði sér ferð um framkvæmdasvæðið og gerir hann upp ferð sína í ríflega tveggja mínútna löngu myndbandi sem sjá má hér að neðan.

https://eyjar.net/vilja-reisa-vinnubudir/

https://eyjar.net/aframhaldandi-uppbygging-hja-vsv/

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.