Stóri plokkdagurinn
plokk_DSC_1258
Stóri plokkdagurinn verður sunnudaginn. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Stóri plokkdagurinn verður haldinn með prompi og prakt um allt land á morgun, sunnudag.

Í tilefni dagsins verður hreinsunardagur á Heimaey. Sameinumst um að hreinsa náttúruna um leið og við gerum umhverfið okkar fallegt fyrir viðburði, gesti og útiveru komandi sumars.

Dagurinn byrjar kl. 11.00 á Stakkagerðistúni þar sem pokum og plokktöngum (fyrir fyrstu sem koma) verður úthlutað. Klukkan 12.30 verður svo grillveisla í boði Bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar á sama stað.

Dagur þessi er fjölskyldudagur þar sem allir – mamma, pabbi, amma, afi, og krakkarnir – sameinast um að gera Heimaey enn fallegri.

Undanfarin ár hafa hópar og félög tekið að sér ákveðin svæði til að hreinsa, sjá meðfylgjandi mynd.

Tvö svæði eru merkt laus og er leitað að hópi sem er tilbúinn að taka að sér þessi svæði í ár en annars er bent á svæði og önnur opin svæði fyrir þá sem koma að plokka á eigin vegum.

Bent er á að hafa samband á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is til að fá úthlutað svæði.

Einnig er skorað á íbúa og fyrirtæki að þeir hreinsi lóðir sínar og nærumhverfi. Þannig gerum við í sameiningu bæinn okkar hreinan og fagran fyrir sumarið.

Helstu PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI

· Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt. Búa jafnvel til viðburð með góðum hópi.

· Gott er að vera með ruslapoka, hanska, plokktöng og bakpoka undir aukapoka.

· Klæða sig eftir aðstæðum.

· Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.

· Senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.

· Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.

· Vera í góðu skapi og helst með einhverjum skemmtilegum.

Með fyrir fram þökk, segir í tilkynningu umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar.

https://eyjar.net/hreinsunardagur-ibv/

Nýjustu fréttir

Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.