Samgöngustofa hefur gefið út farþegaleyfi fyrir nýja Herjólf. Það nær til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar. Einhverjir dagar eru þar til ferjan hefur áætlunarferðir, að sögn Guðbjarts Ellerts Jónssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs ohf.
Hann segir að lagfæra þurfi ekjubrýr. Gera þarf minni háttar breytingar í Landeyjahöfn og Þorlákshöfn og örlítið meiri breytingu í Vestmannaeyjum þar sem lengja þarf ekjubrúna. Einnig þarf að aðlaga farþegabrýr. Þá þarf að prófa að aka inn í ferjuna háum ökutækjum, t.d. dráttarbílum með gáma, við mismunandi sjávarstöðu. Gera á fyrstu prufuna í dag. Unnið er að því að gera skipið klárt til að taka á móti farþegum og þjónusta þá.
Ekki er búið að setja upp rafhleðslubúnað fyrir skipið í Vestmannaeyjahöfn. Hluti búnaðarins er kominn til landsins og annað er á leiðinni. Guðbjartur gerir ráð fyrir að uppsetning og tenging búnaðarins verði fljótlega boðin út og að verklok verði í september. Ferjan mun því keyra á rafmagni frá ljósavélum til að byrja með.
Farþegaleyfið heimilar að nýja ferjan flytji allt að 540 farþega í hverri ferð milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja yfir sumarið. Sá Herjólfur sem nú er í notkun má flytja mest 517 farþega á sömu leið og sama tíma. Þetta er því aukning um 23 farþega í hverri ferð. Nýja ferjan má flytja allt að 400 farþega þegar siglt er í Þorlákshöfn að vetri. Eldri ferjan má ekki flytja nema 288 farþega til og frá Þorlákshöfn að vetri.