Lífsviljinn og lífsgleðin í myndum mínum

Bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2019, Viðar Breiðfjörð sýnir verk sín í Cratious-krónni á Skipasandi og verður sýningin opnuð klukkan 20.00 á fimmtudagskvöldið. Verkin á sýningunni hefur Viðar unnið á síðustu tveimur árum auk verka sem hann hefur unnið í sumar.

„Mín myndlist eru þakkir fyrir að vera á lífi,“ sagði Viðar sem var staddur á Þórshöfn á Melrakkasléttu á leið sinni um landið þegar rætt var við hann. „Ég hef lent í slysum og oftar en einu sinni verið nálægt því að deyja. Hef sloppið og fyrir það er ég óendanlega þakklátur. Lífsviljinn og lífsgleðin er það sem endurspeglast í myndum mínum.“

Myndefnið sækir hann víða en þó eru þrjú stef í sýningunni. „Það er sería af húsamyndum sem ég kalla Í húsum hæf, nokkrar apstraktmyndir og uglumyndir sem eru innblásnar af samskiptum mínum við mannlífið.“

Viðar er fæddur 31. maí árið 1962 á Húsavík. Hann fluttist til Vestmannaeyja árið 1983 og hefur búið hér og starfað æ síðan. „Náttúra Vestmannaeyja hefur verið honum innblástur í listsköpun sinni og skildi þá engan undra. Verk hans eru bæði olíumálverk, vatnslitaverk auk teikninga og beitir Viðar „blandaðri tækni“. Hann er vandvirkur, tekur sér tíma til þess að klára verk sín og hefur mörg járn í eldinum ef svo má segja, en hann vinnur við mörg verk samtímis,“ sagði Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs þegar hann tilkynnti val ráðsins á Bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2019 í vor.

„Ævistarf hans er fyrir löngu orðið samofið myndlistarlífi Vestmannaeyja og ástríða hans fyrir myndlist er virðingarverð. Viðar auðgar menningarlíf okkar Eyjamanna svo um munar og er því vel að þessari viðurkenningu kominn,“ sagði Njáll einnig.

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.