Séra Bjössi og Ingi Bauer á Þjóðhátíð - dagskráin fullmótuð
Dagskrá Þjóðhátíðar er nú fullmótuð og stefnir í stórkostlega Þjóðhátíð – síðustu tvö nöfnin sem tilkynnt eru: Séra Bjössi og Ingi Bauer.
Snillingarnir í Séra Bjössa komu óvænt og hratt fram á sjónarsviðið í fyrra með smellinum Djamm Queen og hafa síðan sigrað yngri kynslóð landsins með vel grípandi textum og sterkum takti. Ingi Bauer er svo ógnar vinsæll “pródúsant” og gerði einmitt lagið vinsæla Dicks með Séra Bjössa en þekktastur fyrir eitt allra vinsælasta lag síðasta árs, Upp til hópa með Herra Hnetusmjör sem setið hefur á lista yfir vinsælustu lögin á Spotify í heilt ár! Á morgun kemur svo út lagið Áttavilltur með Inga, Chase Anthony og Ezekiel Carl – þeirra útgáfa af hinu sígilda Þú vilt ganga þinn veg. Báðir þessir listamenn eru að spila á stóra sviðinu í Herjólfsdal í fyrsta skipti og má búast við sturlaðri stemningu.
Dagskrá Þjóðhátíðar 2019:
Herra Hnetusmjör, Huginn, GDRN, Flóni, ClubDub, Jón Jónsson, Friðrik Dór, JóiPéxKróli, SZK, Lukku Láki, GRL PWR, Bjartmar Guðlaugs, ÁMS, Aldamótatónleikarnir, Halldór Gunnar og Albatross ásamt Sverri Bergmann, Killer Queen, Stuðlabandið, Foreign Monkeys, Huldumenn, Brimnes, Svala Björgvins og Egill Ólafs. 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.