Í morgun fór fram afhending á reiðhjólahjálmum til handa 1. bekkingum GRV í Hamarsskóla.
Í tilkynningu frá klúbbnum segir að þetta sé landsverkefni Kiwanishreyfingarinnar, sem staðið hafi frá árinu 2003. En upphafið má rekja til ársins 1990 þegar Kiwanisklúbburinn Kaldbakur á Akureyri hóf að gefa hjálma. Í kjölfarið bættust klúbbar við þangað til þetta var gert að landsverkefni.
„Markmið hjálmaverkefnis Kiwanis hefur frá upphafi verið að stuðla að öryggi barna í umferðinni með því að gefa nemendum í 1.bekk reiðhjólahjálma. Bæta þannig öryggi þeirra í umferðinni og koma í veg fyrir alvarleg slys og óhöpp við hjólreiðar sem er afar vinæl frístundaiðkun auk þess að vera góð samgönguleið. Hjálmarnir nýtast einnig vel við notkun hjólabretta og hjólaskauta.
Aðalstyrktaraðili verkefnisins er Eimskip og færum við þeim bestu þakkir. Einnig er gott samstarf við Eykyndil sem aðstoða við verkefnið hér í Eyjum með því að útbúa hjólaþrautir og stilla hjálmana fyrir börnin. Einnig kemur lögreglan að hjóladeginum og skoðar hjólin og fá börnin límmiða á hjólið, eins og við fullorðnir fáum á bílinn okkar eftir skoðun.
Við þökkum kærlega öllum sem koma að þessu með okkur og óskum öllum slysalausu sumri og farið varlega í umferðinni.“
segir í tilkynningu frá Kiwanisklúbbnum Helgafell. Myndband frá afhendingunni má sjá hér að neðan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst