Þurftum að bregðast við breyttu farþegastreymi
19. ágúst, 2019

Aukin ferðatíðni Herjólfs eru frábær samgöngubót fyrir Vestmannaeyjar það hefur svo sannalega sýnt sig í sumar. Hin hliðin á þessum fjölda ferða er svo minni nýting á flugsamgöngum.

Frá og með 1. september mun flugfélagið fækka ferðum sínum niður í tíu ferðir í viku. „Flogið verður alla daga nema laugardaga og verða tvær ferðir mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og sunnudaga en ein ferð á þriðjudögum og föstudögum,” sagði Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri flugfélagsins Ernis í samtali við Eyjafréttir. „Einnig munum við áfram bæta við ferðum, og oft með stuttum fyrirvara, eins og t.d. í kringum stórar helgar, viðburði og/eða þegar eftirspurn eykst umfram framboð á ákveðnum dögum og tímum.”

Ásgeir sagðir ástæðuna fyrir þessari fækkun ferða vera töluverða fækkun farþega. „Ástæða fækkunar er töluverð fækkun farþega sem vonandi er samt bara tímabundin. En við þurftum að bregðast við breyttu farþegastreymi með fækkun ferða.
Við höfum möguleika á að bæta aftur í ferðafjöldann ef eftirspurn eykst og því þarf að nýta þessa þjónustu til að hægt sé að halda henni gangandi með tveimur ferðum á dag.”

Ásgeir sagði þetta ekki eingöngu bundið við Vestmannaeyjar það sama sé uppi á teningnum á öðrum áfangastöðum félagsins. „Það er fækkun almennt og höfum við fækkað ferðum á Höfn og Húsavík einnig,” sagði Ásgeir.

Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs.

Bindum miklar vonir við skosku leiðina
Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs sagði í samtali við Eyjafrétti þetta að sjálfsögðu vera töluvert áhyggjuefni fyrir Vestmannaeyjar. „Jú að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af stöðunni og stöðu innanlandsflugs almennt. Öflugt innanlandsflug er ein forsenda fyrir dreifðri byggð í landinu og nú er orðið ljóst að ekki er aðeins verið að fækka flugferðum til Vestmannaeyja heldur einnig til Ísafjarðar, Egilsstaða og Húsavíkur. Því miður virðist innanlandsflug eiga erfitt uppdráttar þessar vikurnar og við höfum vissulega áhyggjur af því og höfum líst því. Flugið er hluti af okkar samgöngum og það er gríðarlega mikilvægt fyrir íbúa og fyrirtæki í Vestmannaeyjum að geta treyst á flugtengingu við höfuðborgina,” sagði Njáll.

„Bæjaryfirvöld hafa rætt stöðuna í bæjarstjórn og tvisvar í bæjarráði, bæði á síðasta fundi sem og í vetur þegar Ernir tilkynnti þá um fækkun flugferða til Vestmannaeyja. Við höfum átt samtöl við bæði þingmenn sem og samgönguráðherra sem vinnur nú að útfærslum hinnar svokölluðu skosku leiðar sem við bindum miklar vonir við að verði til þess að glæða innanlandsflug og gera það aðgengilegra almenningi. Því miður hafa þessar útfærslur ekki enn komið fram.” Njáll sagði bæjaryfirvöld halda áfram að þrýsta á ráðherra og þingmenn. „Við munum halda samtali okkar við ráðherra og þingmenn áfram og þrýsta á eins og við getum að skapað verði umhverfi þar sem innanlandsflug geti vaxið og dafnað.”

Ný áætlun Ernis tekur gildi þann 1. september næstkomandi. Flogið verður mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 7.15 og 15.45 til Eyja og kl. 8.00 og 16.30 frá Eyjum. Á þriðjudögum og föstudögum verður aðeins ein ferð kl. 15.45 til Eyja og 16.30 frá Eyjum. Ekkert flug verður á laugardögum en á sunnudögum verða farnar tvær ferðir. Klukkan 11.30 og 17.30 til Eyja og klukkan 12.15 og 18.15 frá Eyjum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst