Björgunarskipið Þór var kallað út skömmu eftir miðnætti vegna erlendrar skútu sem lent hafði í töluverðum vandræðum djúpt suður af landinu.
Haft er eftir Jóni Þór Víglundssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar á fréttavefnum mbl.is að tólf manns hafi verið um borð í skútunni en engin alvarleg meiðsl orðið á fólki.
Vandræðin fólust í því að segl skútunnar rifnaði og eldsneytismagnið um borð var af svo skornum skammti að fólkið gerði ekki ráð fyrir að ná til Vestmannaeyja með vélarafli.
Þór var því sendur af stað með eldsneyti, en að sögn Jón Þórs fékk skútan tóg í skrúfuna í millitíðinni og varð þar með vélarvana og stjórnlaus, en haugasjór var á vettvangi eða fjögurra til fimm metra ölduhæð og stífur vindur.
Þór kom að skútunni snemma í morgun og segir Jón Þór björgunarskipið nú með skútuna í togi á rólegri siglingu í átt til lands í Vestmannaeyjum.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.