Skrifað undir samninga um tvo nýja strengi til Eyja
Landsnet IMG 9282 (003) Cr
Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets skrifaði undir samning við fulltrúa frá Hengtong Submarine Cable. Ljósmynd/Landsnet

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets hefur skrifað undir samning við fulltrúa frá Hengtong Submarine Cable um kaup og lagningu á 38,8 km af sæstrengjum. Um er að ræða tvo nýja Vestmannaeyjastrengi og nýjan streng yfir Arnarfjörðinn.

Í tilkynningu á vefsíðu Landsnets segir að lagningarskip komi til landsins sumarið 2025 og mun leggja alla strengina. Nýju strengirnir  munu bæta afhendingaröryggið á svæðunum til muna.

Vestmannaeyjastrengir 4 og 5

Frá Rimakoti verður lagður 3,5 km langur jarðstrengur sem tengist sæstreng um 250 m frá fjöruborðinu í Landeyjarfjöru, þaðan mun 13 km langur sæstrengur verða lagður til Vestmannaeyja og tengjast 1,3 km jarðstreng að tengivirki í Vestmannaeyjum.

Mjólkarárlína 2

Framkvæmdin felst í lagningu nýs 66 kV jarðstrengs  2,4 km frá Bíldudal með fram sunnanverðum Bíldudalsvogi að Haganesi. Nýr 66 kV sæstrengur 11,8 km verður lagður yfir Arnarfjörð fyrir Langanes að Hrafnseyri. Að lokum verður svo lagður 66 kV jarðstrengur frá Mjólká og þangað sem sæstrengurinn kemur í land við  Hrafnseyri.

Nýjustu fréttir

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni  
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa
Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.