Blaðamenn á landsbyggðinni mikilvægur hlekkur í lýðræðissamfélagi
Sigríður Dögg: Það er mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir mikilvægi blaðamennsku fyrir samfélagið, ekki síst nærsamfélagið.

„Um helgina fór fram ráðstefna í Vestmannaeyjum í tilefni þess að Eyjafréttir fagna fimmtíu ára afmæli um þessar mundir, en miðillinn hefur nú verið sameinaður eyjar.net. Tilgangur ráðstefnunnar var að ræða hvernig efla megi héraðsfréttamiðla á Íslandi en staða þeirra hefur veikst á undanförnum árum og áratugum. Í dag eru stór landssvæði á Íslandi þar sem enginn fjölmiðill er starfandi á, svokallaðar fréttaeyðimerkur eða hvítir blettir. Rannsóknir sína að á svæðum þar sem engir fjölmiðlar starfa, þar hnigni lýðræðisþáttaka frekar, spilling eykst og samfélagssamheldni dvínar,“ segir á press.is, heimasíðu Blaðamannafélags Íslands sem Freyja Steingrímsdóttir skrifar og birtist þriðjudaginn 9. júlí en ráðstefnan var í Þekkingarsetrinu sunnudaginn 7. júlí.

„Sigríður Dögg, formaður BÍ, sagði það mikilvægt að almenningur geri sér grein fyrir mikilvægi blaðamennsku fyrir samfélagið, ekki síst nærsamfélagið, og átti sig á stöðu þeirra blaðamanna sem vinni í þeirra þágu. Fólk eigi að þakka það sem vel sé gert, fyrir að fjallað sé um flókin mál frá mörgum hliðum, þau sett í samhengi og stjórnvöld og atvinnulífið látin svara spurningum sem almenningur hefur ekki kost á að fá svör við með öðrum hætti. Öll viljum við betra samfélag og fagleg blaðamennska sé mikilvægur hlekkur í lýðræðissamfélagi.

Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar, fór yfir rekstraráskoranir héraðsmiðla og tillögur til aðgerða. Hann sagði miðlana almennt veikburða, og standi vart undir sér. Hvorki sé til fjármagn eða tími fyrir þróunina sem þyrfti að eiga sér stað til að halda í við breyttan veruleika, lítil nýliðun væri í stéttinni og lítil fjölbreytni. Bregðast þurfi við þessari stöðu.

Gunnar kynnti einnig í lok ráðstefnunnar áskorun héraðsfréttamiðla til til viðskipta- og menningarmálaráðherra sem sótti ráðstefnuna. Í áskoruninni kemur m.a. Fram að forsvarsmenn héraðsfréttamiðla vilji aukið gegnsæi og fyrirsjáanleika við úthlutun styrkja til einkarekinna fjölmiðla. Hlutverk landsbyggðarmiðlanna fyrir sitt nærumhverfi sé óumdeilt því þeir sinni aðhaldi, upplýsingamiðlun og söguskráningu fyrir sín svæði sem aðrir fjölmiðlar ná ekki að sinna.

Ritstjórar og útgefendur héraðsfréttamiðla á Íslandi skoruðu auk þess á ráðherra að veita allri þeirri fjárhæð sem áætluð er til stuðnings einkarekinna fjölmiðla í fjárlögum, um 700 milljónum, fyrir árið 2024. Á síðasta ári hafi stuðningurinn verið upp á 370 – 470 milljónir og því ekki öll fjárheimildin verið nýtt þrátt fyrir brýna þurf. Aukinn beinn stuðningur hins opinbera sé þessum miðlum lífsnauðsynlegur auk þess sem íslenska ríkið eigi enn langt í land með að styðja við einkarekna fjölmiðla eins og gert sé á Norðurlöndunum.

Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni voru viðskipta- og menningarmálaráðherra, Lilja D. Alfreðsdóttir, Guðmundur Sv. Hermannsson, blaðamaður á Morgunblaðinu og fyrrum fréttastjóri, Ómar Garðarsson, ritstjóri Eyjafrétta, Kristján Már Unnarsson fréttamaður á Stöð 2 og Valgeir Örn Ragnarsson varafréttastjóri RÚV. Páll Magnússon fv. fréttamaður og alþingismaður, stýrði ráðstefnunni.“

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.