Veðurstofan gefur út fleiri viðvaranir
Gul Vidv 030824
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út  gular viðvaranir  vegna veðurs á Suðurlandi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendinu. Er þetta önnur viðvörunin sem gefin er út um helgina á Suðurlandi, en þar tekur viðvörunin gildi á morgun, sunnudag kl. 18:00 – mánudagsmorguns kl. 06:00.

Í viðvörunarorðum segir: Austan 15-20 m/s syðst á svæðinu, þ.e. undir Eyjafjöllum og í Vestmannaeyjum og þar má búast við snörpum vindhviðum. Hægari vindur annars staðar á svæðinu. Tjöld geta fokið og fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Hugleiðingar veðurfræðings

Það er ennþá hvöss austanátt syðst á landinu þegar þetta er skrifað og fór vindur hæst í 24 m/s á Stórhöfða. Vindur gengur smám saman niður og verður orðið skaplegra í kvöld enda lægðin að fjarlægjast okkur. Það var víða ágætisveður vestan- og norðanlands þar sem var fremur hlýtt og jafnvel bjart, en hitinn fór hæst í 20.4 stig í Húsafelli.

Önnur djúp lægð er á leiðinni til okkar á morgun með tilheyrandi leiðindaveðri um allt land. Seinnipartinn á morgun fer að hvessa, einkum syðst á landinu með austan og norðaustan hvassviðri eða stormi. Talsverð eða mikil rigning fylgir lægðinni á Suðausturlandi og Austfjörðum og má búast við miklu vatnsveðri annað kvöld og allan mánudaginn (frídag verslunarmanna). Mikilvægt er fyrir ferðafólk að fylgjast vel með veðurspám og -viðvörunum.

Það lægir sunnan- og austanlands á mánudag, en að sama skapi gengur í norðaustan hvassviðri norðvestantil sem getur reynst varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Spá gerð: 03.08.2024 17:10. Gildir til: 04.08.2024 00:00.

Nýjustu fréttir

Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.