Héldu sig við bílana eins og pabbinn
Bílstjórar Cr
Þessa mynd tók Sigurgeir Jónasson 7. febrúar 1978. Bílstjórar hjá Bifreiðarstöð Vestmannaeyja. Helgi Leifsson, Magnús Guðjónsson frá Reykjum, Adólf Sigurjónsson og Sigurgeir Scheving. 

Adólf Sigurjónsson bifreiðastjóri, Addi var einn litríkra bílstjóra á Bifreiðastöðinni sem á síðustu öld var ein af stoðum bæjarfélagsins. Kona hans var Herdís Tegeder og áttu þau drengina  Sigurjón Hinrik, Gunnar Darra og Jón Steinar. Allir bifvélavirkjar og héldu sig við bílana sem þeir ólust upp við.

Í næsta blaði Eyjafrétta sem kemur út á morgun verður fjallað nánar um bíla og bifreiðaþjónustu í Eyjum. Í blaðinu verður einnig fjallað um Sigurbjörgu ÁR, nýtt skip Ísfélagsins, skólasamfélagið í Eyjum, um lúsmýið og um Laufey – þjónustumiðstöð. Þá er forvitnilegt viðtal við Adam Nichols, prófessor við Marylandháskólann í Bandaríkjunum. Hann var staddur í Vestmannaeyjum í síðustu viku, en Tyrkjaránið hefur átt hug hans allan í þrjátíu ár. Enn fremur er Þjóðhátíðin gerð upp auk þess sem við fáum skemmtilega lýsingu á fullkomnum degi á Eyjunni fögru.

Allt þetta og fleira til í blaðinu sem út kemur á morgun, mánudag. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér á vefnum eftir hádegi á mánudag, Ef þig vantar aðgang getur þú smellt hér. Ef þú vilt gerast áskrifandi getur þú smellt hér.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.