Borað eftir sjó og eigin vatnsframleiðsla
Í matsalnum í Viðlagafjöru þar sem boðið er upp á veislurétti í ölll mál. Mynd Óskar Pétur.í

Allur úrgangur nýttur sem áburður

Í Viðlagafjöru eru risin fjögur af átta lokuðum kerjum sem verða  klár í lok október. Öll verða sandblásin að innan og er sú vinna hafin. Loks verða kerin húðuð að innan með til þess gerðu efni. Byrjað er á minni kerjum  sem seiðin eru í stuttan tíma áður en eldið hefst í stóru tönkunum. Allt á þetta að vera tilbúið í lok október. Rafstöð er risin í Viðlagafjöru og komin í gang. Þar eru tveir rafalar til vara og geta framleitt nægt rafmagn fyrir stöðina. Stærsta  húsið er fóðurstöðin þar sem einnig verður sláturhús að hluta áður en stærra sláturhús rís.

Þar fyrir aftan er hús þar sem jarðsjórinn kemur upp og er hreinsaður áður en hann fer í stóru kerin. Sjór fæst úr 11 holum sem er um 40 metra djúpar og úr einni til tveimur 140 metra djúpum. Sjórinn úr þeim er heitari og er notaður til varmaskipta og viðhalda kjörhita við eldið sem er 11 til tólf gráður  Tryggir góðan vöxt laxins.

default
Yfirlitsmynd af landeldinu í Viðlagafjöru þar sem hver byggingin rís af annarri.

Í fjöruborðinu er affallshúsið þar sjórinn rennur til sjávar, en hann er hreinsaður áður. Í hverri átta kerja einingu eru tvö viðhalds og þjónustu hús. Átta ker í ár, átta á næsta ári og svo koll af kolli, í allt sex áfangar með samtals 48 tönkum. Sjórinn sem fer í kerin hefur ekki verið í snertingu við aðrar lífverur er samt hreinsaður áður en hann fer inn á gegnisstreymiskerfi og er svo líka hreinsaður áður enn hann fer í sjóinn.

Laxey stefnir á að framleiða eins mikið vatn fyrir starfsemina og það getur með því að nota RÓ síu sem breytir sjó í vatn. Í seiðastöðinni fer vatnið inn á lokað hringrásarkerfi í seiðaeldisstöðinni og tekur það um tæpan klukkutíma að fara í gegnum kerfið. Gert er ráð fyrir að kerfin séu að endurnýta 99,7% vatnsins í hverju kerfi.

Seiran, úrgangur frá seiðum og laxi í eldi er hreinsuð frá og safnað saman og notuð sem áburður. Í henni er mjög hátt hlutfall af fosfór sem er mjög góður fyrir allan gróður.

Nýjustu fréttir

Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?
„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.