Bæjarráð fjallaði á fundi sínum í hádeginu um drög samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að 15 ára samgönguáætlun 2020-2034 og 5 ára aðgerðaáætlun 2020-2024, sem óskað var umsagnar um í samráðsgátt stjórnvalda.
Niðurstaðan var sú að bæjarráð samþykkti eftirfarandi drög að umsögn og felur bæjarstjóra að senda hana í samráðsgátt stjórnvalda.
Landeyjahöfn skiptir lykilmáli í samgöngum við Vestmannaeyjar. Nú þegar ný ferja er komin í siglingar er nauðsynlegt að allt sé gert til að halda Landeyjahöfn opinni sem samgönguleið til Vestmannaeyja. Gengið er út frá því að gefin loforð um að gera höfnina að heilsárshöfn verði efnd og allt kapp lagt á að ná þeim markmiðum. Um Landeyjahöfn fara rúmmlega 300 þúsund farþegar á ári og má búast við frekari aukningu á fjölda ferðamanna með tilkomu nýrrar ferju eins og reyndin hefur verið í sumar. Það er því mikilvægt að að halda inn í samgönguáætlun þeim fjárveitingum sem veitt hefur verið til dýpkunar hafnarinnar meðan reynsla er að koma á nýja skipið og ekki hefur verið farið í breytingar á höfninni. Bundnar eru vonir við að óhað úttekt muni leiða í ljós til hvaða aðgerða þurfi að grípa. Eins og áætlunin er lögð fram í samráðsgáttinni til næstu 5 ára, skerðist framlagið verulega og mun það gera Vegagerðinni ókleyft að sinna nauðsynlegri dýpkun til að nýta höfnina og ferjuna í Landeyjahöfn.