Sigurgeir og sonardóttirin slá saman
Sigurgeir og Katrín yngri á svölunum í Gvendarhúsi þar sem hann býr með Katrínu sinni. Í baksýn er Þorlaugagerði sem Sigurgeir er oft kenndur við.

Sigurgeir Jónsson, fyrrum kennari, sjómaður og blaðamaður með meiru, hefur verið ötull í ritun bóka, eftir að hann komst á eftirlaunaaldur og alls hafa komið út 13 bækur eftir hann langflestar á þessari öld. Nýjasta bók hans sem nú er að koma út heitir, Fyrir afa, nokkrar smásögur og er 14. bók hans. Flestar fjalla bækur hans um mannlíf og félagslíf í Vestmannaeyjum og þessi gerir það að hluta til þótt hér sé um skáldsögur að ræða.

Sonardóttir hans, Katrín Hersisdóttir, sem sér um myndlýsingu í þessari bók hefur stundað nám í grafískri hönnun við Hönnunarskólann í Kolding í Danmörku og lauk þaðan prófi í sumar. Hún ákvað að lokaverkefnið hennar við þann skóla yrði myndlýsing við bókina og gaf verkefninu heitið: Fyrir afa sem varð svo heiti bókarinnar.

Bókin fæst í Eymundsson/Pennanum.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.