Hermann tekur við HK
Hermann Hreiðarsson, hér í starfi þjálfara ÍBV að segia sínum mönnum til gegn HK.

Knattspyrnudeild HK hefur samið við Hermann Hreiðarsson um að taka við þjálfun meistaraflokks karla til næstu þriggja ára. Hermann eða Hemmi, er flestu knattspyrnuáhugafólki vel kunnugur. Hann lék lengi sem atvinnumaður á Englandi og spilaði yfir 300 leiki í ensku úrvalsdeildinni ásamt því að eiga 89 A-landsleiki á bakinu, segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild HK.

Sem þjálfari hefur Hemmi m.a. þjálfað á Englandi, Indlandi ásamt Fylki, Þrótti Vogum og nú síðast uppeldisfélag sitt, ÍBV, en þá gerði hann að Lengjudeildarmeisturum í ár.

“Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Hemma til starfa og bindum við miklar vonir við komu hans hingað í HK. Hemmi hefur mikla reynslu úr heimi fótboltans og verður spennandi að sjá hann stýra meistaraflokki karla næstu þrjú árin ásamt því að vinna með þeim fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum sem eru og hafa verið að banka á dyr meistaraflokksins sl. misserin”, sagði Hjörtur Þór Steindórsson formaður knattspyrnudeildar HK.

Velkominn í Hlýjuna Hemmi, segir að endingu í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Saman erum við sterkari
Frambjóðendur á opnum kynningarfundi í Ásgarði
ÍBV sigraði botnlið ÍR í Eyjum
Loppumarkaður í Safnahúsinu um helgina
Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.