Botnlið Gróttu gerði góða ferð til Vestmannaeyja í dag, en liðið gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði lið ÍBV. Lokatölur 31-19. Jafnræði var með liðunum fyrsta þriðjung leiksins en í leikhléi var Gróttu-liðið komið með þriggja marka forystu, 16-13.
Í seinni hálfleik dró enn í sundur með liðunum og fór svo að Grótta sigraði eins og áður segir með 12 mörkum. Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst í liði ÍBV með sjö mörk. Eftir leiki dagsins er ÍBV í sjöunda sæti með sex stig. Grótta er enn í neðsta sæti deildarinnar nú með fjögur stig – jafnmörg og ÍR og Stjarnan.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…