Bæði kvenna- og karlalið ÍBV töpuðu leikjum sínum í kvöld. Stelpurnar gegn Val á útivelli og strákarnir á heimavelli gegn Fram.
Lokatölur hjá stelpunum voru 29-21. Staðan í leikhléi var 16-8. Hjá ÍBV skoraði Birna Berg Haraldsdóttir sjö mörk og Sunna Jónsdóttir gerði fimm mörk. Valur er með fullt hús stiga á toppnum en ÍBV er í fimmta sæti með 6 stig.
Lokatölur í Eyjum í kvöld voru 29-36 fyrir Fram, en í leikhléi munaði aðeins einu marki á liðinum, 17-16 Fram í vil. Rúnar Kárason skoraði 10 mörk fyrir Fram í kvöld og reyndist hann Eyjamönnum erfiður. Hjá ÍBV var Sigtryggur Daði Rúnarsson markahæstur með 6 mörk og þeir Dagur Arnarsson og Gauti Gunnarsson skoruðu sitthvor 4 mörkin.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…