Flutningurinn heppnaðist afar vel
DSC 3811 (1)
Dælt í bílinn. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Síðastliðinn föstudag hóf Laxey flutning á fyrstu seiðunum frá seiðastöðinni yfir í áframeldið í Viðlagafjöru. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að flutningurinn hafi heppnast afar vel.

„Fyrir einu ári síðan fékk Laxey sinn fyrsta skammt af hrognum, sem síðan hafa vaxið í gegnum ferlið á seiðastöðinni okkar. Nú eru þau tilbúin að halda áfram vexti sínum í áframeldinu í Viðlagafjöru. Fyrst um sinn verða þau í stórseiðahúsinu, en að lokum verða þau flutt í áframeldiskerin þegar rétti tíminn er kominn.

Til að tryggja farsælan flutning þurfti allt að ganga upp – framkvæmdir þurftu að vera á áætlun, allur tæknibúnaður uppsettur, gangsettur og prófaður. Mikið hrós og tækni- og framkvæmdarteymi félagsins til að tryggja að stórseiðahúsið sé klárt á tíma. Mikil vinna hefur því farið fram undanfarnar vikur til að undirbúa þetta skref. Stemningin hefur verið frábær, og allir einbeittir og staðráðnir í að láta flutninginn ganga upp.

Flutningurinn gekk hnökralaust fyrir sig og lífmassinn er að aðlagast vel nýju umhverfi sínu. Þessi árangur er stórt skref fram á við og ber vitni um mikla vinnu og elju starfsmanna félagsins.” segir í fréttinni.

Halldór B. Halldórsson og Óskar Pétur Friðriksson fylgdust með flutningnum í gegnum linsurnar. Auk þess eru nokkrar myndir hér að neðan frá Laxey.

Play Video

Nýjustu fréttir

Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Mikill áhugi á The Puffin Run – Um 1.300 keppendur þegar skráðir
Sala á jólasælgæti Kiwanis hefst um helgina
25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Fresta tendrun jólatrésins á Stakkagerðistúni vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.