Litla Mónakó - Nýja olíu auðlindin og Smyril Line að hefja áætlunarsiglingar
eftir Jóhann Halldórsson
Thumbnail Download (1) (2)
Ljósmynd: Laxey / Óskar Jósúason

Í lok nóvember var stærsta áfanga til þessa náð hjá landeldisfyrirtækinu LAXEY þegar að áframeldi í Viðlagafjöru var formlega tekið í notkun og má því segja að landeldi í sjó er hafið. Þetta er svo táknrænt á marga vegu. Þegar að maður horfir í fyrsta skipti á flutning seiðanna úr seiðaeldisstöðunni í Friðarhöfn yfir í áframeldið í Viðlagafjöru.

Nú dælum við nýju olíunni á tanka og flytjum svo verðmætin úr landi með tilheyrandi gjaldeyristekjum fyrir þjóðarbúið.

Til þess að undirstrika svo hversu mikið afreka þetta er í raun og veru að þá var fyrsta skóflustunga í Viðlagafjöru tekin 17.febrúar 2023, eða fyrir einungis 21 mánuði síðan! Um er að ræða stærstu framkvæmd í sögu Vestmannaeyja og er uppbyggingin á áætlun. Ekki bara það heldur samhliða þessari uppbyggingu byggði Laxey upp eitt stykki seiðaeldistöð sem er 12.500 fm og stærsta húsnæði sem hefur verið byggt í Vestmannaeyjum.

Sú framkvæmd var á undan áætlun! Þetta er afrek sem sennilega hefur ekki  verið afrekað hérlendis áður í jafn víðamikilli einkaframkvæmd og því ekki skrýtið að erlendir fjárfestar sýna verkefninu jafnmikinn áhuga og raun ber vitni. Laxey er því skrefinu nær að hefja útflutning fyrir 30.000.000.000 kr á ári

Til að setja þá tölu í eitthvert samhengi myndi það þýða að hvert mannsbarn í Vestmannaeyjum væri með rekstur þar sem að útflutningsverðmæti hvers og eins næmi yfir 600.000kr á mánuði! Þeir í Þorlákshöfn eru kannski með Laxabraut en við erum með LAXEY.

Enn ein birtingamynd á klasamynduninni sem er byrjuð í Eyjum út af einkaframtakinu er sú að Smyril Line áætlar að hefja siglingar til Eyja í lok næsta árs. Í viðtali við Dóru Björk Gunnarsdóttur, hafnarstjóra í Vestmannaeyjum við Auðlindina segir: Áhugi Smyril line á Vestmannaeyjum megi rekja til uppbyggingar ný fyrirtækisis, Laxeyjar sem hefur undanfarin misseri unnið að mikilli uppbygginu landeldis á laxi í Viðlagafjöru. Sú starfsemi sem þar verði kalli á að ekjuskip hafi góða aðstöðu í höfninni í Vestmannaeyjum.

Mykines, skip Smyril Line í Þorlákshöfn

„Þetta er mikið verkefni og kostnaðarsamt en nauðsynlegt til að byggja upp til framtíðar,“ segir Dóra. „Umsvifin í höfninni hafa aukist mjög samhliða þeirri uppbyggingu sem Laxey stendur fyrir, en öll aðföng sem þarf til að byggja upp hafa komið í gegnum höfnina. Þetta hefur verið góð innspýting fyrir okkur.“

Til að átta sig svo betur á hversu mikilvægt það er að fá Smyril Line til Eyja er ágætt að rifja upp þann uppgang sem hefur orðið í Þorlákshöfn eftir að þeir hófu siglingar þangað. Þar eru starfsmenn orðnir 18 og vonast ráðmenn sveitarfélagsins vonast til að það styttist í farþegaferju til Evrópu.

Þessi klasamyndun sem þegar er hafin er sennilega bara toppurinn á ísjakanum og verður spennandi að fylgjast með hvað kemur næst uppá yfirborðið.

 

Jóhann Halldórsson

Nýjustu fréttir

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.