Síldarsæla á aðventu
Síldarveisla Vinnslustöðvarinnar. Ljósmyndir/vsv.is

​Hefð er orðin fyrir því að bjóða starfsmönnum, fyrrum starfsmönnum og velunnurum Vinnslustöðvarinnar til síldarveislu á aðventunni. Er þetta í fimmta skiptið sem slíkt er gert og mælist þetta afskaplega vel fyrir.

Það eru þau Ingigerður Helgadóttir og Benóný Þórisson sem bera hitann og þungann af skipulagningu veislunnar. Þau sjá um að verka jólasíld Vinnslustöðvarinnar auk þess að skiptast á síldarfötum við önnur uppsjávarfyrirtæki, en í veislunni er boðið upp á jólasíld víða að.

Á boðstólnum þetta árið var auk síldarinnar frá VSV, síld frá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum, Ísfélaginu á Þórshöfn, Marhólmum, Eskju, Síldarvinnslunni, Skinney-Þinganesi, Brim og Loðnuvinnslunni. Meðlætið var svo kartöflur, rúgbrauð egg og sinnep. Sannkallað lostæti, segir í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar.

Adda í London þökkuð góð störf

Á síldakvöldinu var Adda í London (Ísleifur Arnar Vignisson) afhentur þakklætisvottur fyrir góð störf í áratugi fyrir fyrirtækið. Það var Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri sem kvaddi Adda með hlýjum orðum en Addi lauk störfum formlega í vor hjá Vinnslustöðinni.

Addi sá síðustu árin um að kaupa inn umbúðir, vörubretti og ýmsar fleiri rekstrarvörur fyrir Vinnslustöðina. En áður var hann verkstjóri en vann lengst lengst af í frystitækjum Vinnslustöðvarinnar og þar áður Fiskiðjunnar. Hann byrjaði í Fiskiðjunni 1971, þá 17 ára gamall. Addi gerði upp starfsferillinn og lífshlaupið í viðtali á Vinnslustöðvar-vefnum í vor þegar hann lét af störfum. Hér má lesa viðtalið við hann.

Myndasyrpu frá síldarveislunni má sjá hér.

Addi tekur hér við smá þakklætisvotti frá Binna framkvæmdastjóra.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.