Lönduðu báðir fullfermi í heimahöfn
Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í heimahöfn í vikunni. Vestmannaey landaði á þriðjudag og Bergur á miðvikudag. Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey lét vel af veiðiferðinni.

„Þetta var bara fínasti túr en aflinn var mest ýsa. Við hófum veiðar út af Skarðsfjörunni og aflinn var bara góður til að byrja með. Síðan leituðum við að ufsa um tíma með litlum árangri. Þá var tekið eitt hol á Höfðanum og síðan endað á Víkinni. Það var fínasta veður allan túrinn. Það er ekki komið mikið af vertíðarfiski á þessar slóðir. Hann er seint á ferðinni enda sjórinn kaldur suður af landinu, “ sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Berg VE talaði einnig um að enginn vertíðarbragur væri enn á þeim slóðum sem þeir voru á. „Við byrjuðum í Meðallandsbugtinni og fengum þar ýsu. Síðan var leitað að ufsa með takmörkuðum árangri eins og oft áður. Þá fengum við þorsk á Ingólfshöfða og í Breiðamerkurdýpi og loks var restað í þorski á Vík og Pétursey. Þetta gekk alveg þokkalega,” sagði Jón. Bæði skip héldu til veiða á ný í gær, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Myndir frá sjómannafjöri á bryggjunni
Skötuveisla sem stendur undir nafni
Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Bræðurnir Jón Atli og Árni rifja upp árin á Ísleifi
Léttir hlaut nafn sitt við hátíðlega athöfn – myndir
Svipmyndir frá sjómannagleði við sjávarsíðuna
Stjána á Emmunni þakkað fyrir ómetanlegt starf
Fjörugt föstudagskvöld með SSSól í Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.