Litla Mónakó - MonEY

„Það hefði þótt saga til næsta bæjar að hægt væri að gefa út veglegt sérblað um fjármálastofnanir í Vestmannaeyjum og þau miklu efnahagsumsvif sem eru að eiga sér stað í efnahagslífinu í Eyjum. En eins og Sálin hans Jóns míns orðaði það: „Það er af sem áður var annar heimur en í gær,“ segir Jóhann Halldórsson á Fésbókarsíðu sinni og vitnar í nýjasta tölublað Eyjafrétta.

„Þá gáfu Eyjafréttir einmitt út slík sérblað og ánægjulegt er að sjá hve allir eru bjartsýnir á framtíðina í Eyjum. Sérstaklega er áhugavert að lesa viðtöl við Kristján Rikharðsson og komandi uppbyggingu baðlóns og hótels Lava Spring. Ásamt viðtali við Sigríði Gröndal framkvæmdastjóra JAE ehf sem reka m.a Hótel Vestmannaeyjar og hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu.

Það verður að fá að hrósa þeim sem koma að útgáfunni og greinilegt er að nýleg sameining Eyjafrétta og Eyjar.net hefur styrkt hana og aukið enn frekar á metnaðinn sem þetta blað sýnir svo um munar. Hvet ég alla til að sækja sér eintak og ná sér í leiðinni í kærkomna sólarbirtu. Hvað allir þessir aðilar í blaðinu eiga svo sameiginlegt fyrir utan bjartsýni á Eyjarnar er að þeim fylgir gríðarlegt fjármagn og eins og fjárfestarnir segja: Follow the MonEY,“ segir Jóhann.
Með aukinni tækni hefur bankastarfsemi breyst eins og sést á forsíðumyndinni sem Sigurgeir Jónasson tók á 40 ára afmæli Sparisjóðs Vestmannaeyja í desember 1982.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki
Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.