Metfjöldi tilkynninga til barnaverndar
róla-001
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs á fimmtudaginn fór deildarstjóri velferðarmála hjá Vestmannaeyjabæ yfir stöðu barnaverndarþjónustu árið 2024.

Fram kemur að tilkynningar hafi aldrei verið eins margar eða 306 tilkynningar sem bárust barnaverndarþjónustu Vestmannaeyja árið 2024. Flestar tilkynningar voru um vanrækslu gagnvart barni eða um 157.  Tilkynningar sem bárust um áhættuhegðun barns voru 93 og 56 um ofbeldi gagnvart barni. Málum barna með fjölþættan vanda er að aukast og þyngjast, mikilvægt er að ríkið komi til móts við úrræði er varðar þann málaflokk.

Þá segir að verið sé að vinna að nýrri framkvæmdaáætlun barnavernarþjónustu, búa til og efla úrræði í heimabyggð, samþætta þjónustu og efla forvarnir og fræðslu enn frekar í samstarfi við aðrar stofnanir er vinna með börnum.

Nýjustu fréttir

Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.