Stórleikir í dag
Marki fagnað. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í dag. Strákarnir leika mikilvægan leik í bikarnum og stelpurnar leika mikilvægan leik í deildinni. Leikirnir hefjast báðir klukkan 17.30. Í Eyjum mæta strákarnir Val í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Leikið er á Þórsvelli. Áður hafa Eyjamenn slegið út Reykjavíkur-stórveldin Víking og KR.

Stelpurnar eiga útileik gegn ÍA. ÍBV á toppi deildarinnar með 16 stig úr 7 leikjum. Skagastúlkur eru í baráttu á hinum enda töflunnar, eru í áttunda sæti með 6 stig. Það er því stór íþróttadagur framundan hjá ÍBV.

Nýjustu fréttir

Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Góð veiði hjá Vestmannaey og Bergey
Vill gera sérfræðiþekkingu í íþróttum aðgengilegri fyrir alla
Guðmundur Tómas nýr meistari Vöruhúsdeildarinnar
Útboð heilsuræktar – hvað sýna fjárhagsgögnin?
Vikan í Eyjum: Skipalyftan 45 ára, fullt hús hjá Grýlu og sigur á Akureyri
Walmart skoðar aðstæður í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.