Gott að búa í Vestmannaeyjum þegar árin færast yfir
2. september, 2025
Góð heimsókn í Gvendarhúsi. Sigurgeir og Katrín með Guðna Th. fyrrum forseta sem leit við hjá þeim.

Ég hef stundum verið að hugsa um það að undanförnu hve þægilegt það er að vera eldri borgari í Vestmannaeyjum. Reyndar var þetta orðalag, „eldri borgari“ aldrei notað hér á árum áður, heldur alltaf talað um gamalmenni og alltaf haldin sérstök skemmtun árlega sem bar heitið Gamalmennaskemmtunin. En svo þótti einhverjum þetta orð niðrandi og þá var breytt um og farið að tala um eldri borgara. Ég hef aldrei skilið hvað er niðrandi við orðið gamalmenni og spyr oft í búðum hvort ekki sé þar veittur gamalmennaafsláttur. Þá horfa menn yfirleitt á mig undrunaraugum. Til eru önnur orð af sama toga, svo sem ungmenni og hraustmenni og ég hef aldrei skilið af hverju það er talið niðrandi að vera orðinn gamall.

Ég hef allt frá áramótum verið áskrifandi hjá veitingastaðnum Gott að matarsendingum í hádeginu, sem bærinn niðurgreiðir og  hef áður lýst ánægju minni með þá þjónustu. Á hverjum virkum degi í hádeginu rennir bíll upp að Gvendarhúsi með matarskammt dagsins. Og alltaf er sama tilhlökkunin ríkjandi. Yfirleitt geymi ég sendinguna til kvöldsins og snæði hana þá með góðri lyst og svo er yfirleitt afgangur til að fá sér í hádeginu daginn eftir enda skammtarnir ríflega útilátnir. Og ég hef aldrei á þessum tíma fengið vondan mat en sumir réttirnir eru í sérstöku uppáhaldi.

Svo kemur líka fyrir að útkeyrslufólkið skilur eftir tvöfaldan skammt og það er líka vel metið, stundum hægt að bjóða öðrum í mat.  Eigendur og starfsfólk Gott standa sig alveg frábærlega í þessu. Og svo er þetta ekki dýrt; mér sýnist að ég sé að borga í kringum þúsund krónur fyrir dagskammtinn og ég hef fundið greinilega fyrir því hvað Visareikningurinn hefur lækkað síðan ég fór í þessa áskrift og hef ekki þurft að fara daglega í búð til að kaupa matföng og meðlæti. Fyrir slíkt hlýtur maður að vera þakklátur.

Hálfsmánaðarlega kemur líka kona upp í Gvendarhús til að þrífa, skúra, ryksuga, taka baðherbergið í gegn og strjúka af húsmunum. Bærinn býður okkur, þessum gömlu, upp á slíka þjónustu og hún er ekki dýr, yfirleitt er reikningurinn fyrir heilan mánuð innan við  tvö þúsund krónur. Dóttir mín, sem býr á höfuðborgarsvæðinu, segir að slík þjónusta, fyrir almenna borgara, sé tífalt dýrari þar enda ekki niðurgreidd af bæjarfélaginu

Umhyggja fyrir þeim sem eldri eru

En svo varð ég áþreifanlega var við það í síðustu viku að borin er sérstök umhyggja í Vestmannaeyjum fyrir okkur sem komin erum á efri aldur. Ég þurfti einn daginn að sækja þjónustu á þrjá staði. Byrjaði á Innrömmunarverkstæðinu hjá Viðari, góðvini mínum, við Kirkjuveginn þar sem ég sótti þrjár myndir sem hann hafði rammað inn fyrir mig, að sjálfsögðu á góðu verði. Svo þegar ég ætlaði að kveðja og halda á braut, aftók Viðar að ég færi að bera myndirnar upp tröppurnar og sagðist myndu halda á þeim út í bíl fyrir mig sem hann og gerði.

Því næst lá leiðin í Geisla þar sem ég sótti nokkuð stóran vegglampa sem þar hafði verið í viðgerð. Þegar ég hafði greitt reikninginn sem var með ríflegum afslætti, vegna aldurs, sagði Pétur, frændi minn, að hann ætlaði að halda á lampanum fyrir mig út í bíl og stóð við það.

Og svo endaði ég á að fara í klippingu hjá fyrrum nágranna mínum úr Hrauntúninu, Viktori rakara. Ég kom eins og nýsleginn túskildingur úr því, hárlega séð, og svo impraði Viktor á því við mig þegar ég var að fara úr stólnum hjá honum hvort hann ætti ekki að laga fyrir mig armbandið á úrinu mínu, honum sýndist það vera orðið heldur rúmt. Ég þáði að sjálfsögðu að hann tæki einn hlekk úr því og meðan ég klæddi mig í jakkann, græjaði hann það og afhenti mér svo úrið sem var allt annað og betra eftir. Og að sjálfsögðu var ekki rukkað fyrir þá þjónustu.

Þarna fann ég sem sagt þrívegis fyrir því sama daginn hvað þjónustuaðilar í Vestmannaeyjum láta sér annt um þá sem komnir eru á efri aldur. Og fyrir það hlýtur maður að vera þakklátur. Nú veit ég ekki hvernig þessu er háttað í öðrum sveitarfélögum en eftir framkomu sem þessa sem og þá þjónustu sem við njótum hér, hlýtur maður að spyrja sjálfan sig hvort þetta sé bara ekki óskastaður þeirra sem komnir eru á efri ár.

Þá er vert að geta þess sem ég hef orðið vitni að síðustu tvo mánuði, hve vel er hugsað um eldra fólkið okkar á Hraunbúðum. Þar er fólk sem vinnur vel sitt starf.

Sigurgeir Jónsson

Gvendarhúsi

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
8. tbl. 2025
8. tbl. 2025

Nýjar fréttir

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.