Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Frá Vestmannaeyjum. Bæjarmál, samgöngur, óveður og öflugt félags- og íþróttalíf settu svip á fréttavikuna. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Þrír úrskurðir um ólögmætar uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ voru meðal helstu fréttamála vikunnar. Óveður raskaði daglegu lífi, bæjarstjórn lýsti áhyggjum af fjármögnun samgangna og loðnuráðgjöf var undir væntingum. Á léttari nótum var metmæting á kótilettukvöldi og boðið upp á spennandi íþróttahelgi.

Þrjár uppsagnir úrskurðaðar ólögmætar – enn beðið svara

Innviðaráðuneytið staðfesti við Eyjafréttir að þrjár uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar hefðu verið úrskurðaðar ólögmætar á árinu. Úrskurðirnir féllu á 78 daga tímabili, frá 11. júní til 28. ágúst.

Eyjafréttir hafa óskað eftir viðbrögðum bæjaryfirvalda og upplýsingum um hvort úrskurðirnir hafi leitt til heildstæðrar yfirferðar á verklagi við meðferð starfsmannamála. Enn er beðið svara við þeim fyrirspurnum. Í leiðara Eyjafrétta var kallað eftir skýrum svörum, ábyrgð og óháðri úttekt.

Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar · Leiðari: Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör

Óveðrið setti svip á bæjarlífið

Óveður gekk yfir Eyjar á miðvikudag. Formlegu skólahaldi í Grunnskóla Vestmannaeyja var seinkað til klukkan níu og Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út vegna þakplötu sem var farin að losna af húsi í efribyggð. Vindhviður náðu 51 metra á sekúndu á Stórhöfða.

Ljósmyndir frá morgninum sýndu kraftinn í veðrinu. Veðrið er áfram á dagskrá um helgina, en gefin hefur verið út gul viðvörun vegna sunnan og suðvestan storms á sunnudag.

Óveðrið í myndum · Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag

Samgöngur og fjármögnun í brennidepli

Breytingar á siglingum Herjólfs settu áfram svip á vikuna og færa þurfti ferðir milli Landeyjahafnar og Þorlákshafnar.

Á fundi bæjarstjórnar gagnrýndu allir níu bæjarfulltrúarnir skerðingu samgönguframlaga í fjárlagafrumvarpinu. Áhyggjurnar snúa meðal annars að rekstri Herjólfs, dýpkun og nauðsynlegum framkvæmdum í Landeyjahöfn. Bæjarstjórn skoraði á ríkisstjórnina að efla grunnþjónustu og innviði á landsbyggðinni. Samkvæmt tilkynningu Herjólfs frá föstudegi var áætlað að sigla til Þorlákshafnar á sunnudag og mánudag.

Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar · Ábending frá Herjólfi

Loðnuráðgjöf undir væntingum

Uppfærð ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands fyrir komandi loðnuvertíð hljóðar upp á 105.773 tonn, samanborið við rúmlega 358 þúsund tonna upphafsráðgjöf.

Óveður og hafís komu í veg fyrir mælingar á öllu útbreiðslusvæði stofnsins og er talið að stærð hans sé vanmetin. Lokaráðgjöf verður gefin eftir vetrarmælingar á nýju ári.

Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa vali á endurskoðanda Vestmannaeyjabæjar aftur til bæjarráðs í ljósi nýrra upplýsinga. Bæjarráð hafði áður samþykkt að taka tilboði KPMG í endurskoðun og uppgjör bæjarins fyrir árin 2026–2028.

Eyjafréttir höfðu óskað eftir skýringum á því að KPMG væri sagt með starfsstöð í Vestmannaeyjum, ásamt upplýsingum um tilboðsfjárhæðir, matsþætti og fyrirkomulag þjónustunnar. Við birtingu fréttarinnar lá ekki fyrir hvaða nýju upplýsingar hefðu orðið tilefni endursendingarinnar.

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs

Óli Jói fyrsti gestur Svövu Kristínar

Fyrsti sjónvarpsþáttur Svövu Kristínar Grétarsdóttur á vef Eyjafrétta fór í loftið í vikunni. Gesturinn var Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, betur þekktur sem Óli Jói.

Þau fóru um víðan völl, frá prestsstarfinu og eftirminnilegum sögum úr kirkjunni yfir í verkefnin hjá Herjólfi. Húmorinn var skammt undan og þáttinn má sjá í heild hér á vefnum.

Hver er bestur, Óli prestur

Metmæting og góðgerð í Höllinni

Alls sóttu 350 gestir árlegt góðgerðarkvöld Kótilettuklúbbsins í Höllinni á fimmtudagskvöld og hafa aldrei fleiri mætt. Hollvinasamtök Hraunbúða og Krabbavörn í Eyjum hlutu styrki að þessu sinni.

Pétur Steingrímsson og Gunnar Gunnarsson hafa staðið að kvöldunum frá upphafi með aðstoð góðs fólks. Kótilettubandið og gestir héldu uppi fjörinu, Sigurgeir Jónsson vakti mikla kátínu með smásögulestri og minningu Jóa Listó var heiðrað með tónlistarflutningi.

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni

Sigurmörk, endurkomur og blandað gengi á vellinum

Sandra tryggði sigur í blálokin. Kvennalið ÍBV í handbolta vann dramatískan 30–29 sigur á Fram. Sandra Erlingsdóttir skoraði sigurmarkið úr vítakasti á lokasekúndunum. Með sigrinum var ÍBV komið með tíu stig eftir sex leiki og í annað sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan Fram.

Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram

Dagur skoraði tólf gegn Þór. Karlalið ÍBV í handbolta vann 37–31 sigur á Þór á föstudagskvöld. Eyjamenn leiddu með einu marki í hálfleik en náðu góðum tökum á leiknum eftir hlé. Dagur Arnarsson var markahæstur með tólf mörk og ÍBV var eftir leikinn í sjötta sæti með sex stig.

ÍBV vann sex marka sigur á Þór

Bikarævintýri ÍBV B á enda. ÍBV B féll úr Powerade-bikarnum eftir 30–27 tap gegn Þór Akureyri í 16-liða úrslitum. Agnar Smári Jónsson og Fannar Þór Friðgeirsson sneru aftur í Eyjaliðið og Agnar Smári skoraði tólf mörk. Staðan var jöfn í hálfleik en gestirnir höfðu betur eftir spennandi baráttu í gamla salnum.

Agnar Smári með stórsýningu í endurkomunni

Eyjamenn unnu FH manni færri. Karlalið ÍBV í fótbolta vann 3–1 sigur á FH þrátt fyrir að leika manni færri frá því í fyrri hálfleik. Omar Sowe, Viggó Valgeirsson og Arnór Ingi Kristinsson skoruðu mörkin. Fall ÍBV í Lengjudeildina var þegar staðfest fyrir leikinn.

ÍBV vann sanngjarnan 3–1 sigur á FH

Naumt tap Eyjakvenna. Kvennalið ÍBV í fótbolta tapaði 2–1 fyrir Grindavík/Njarðvík á útivelli. Ágústa María Valtýsdóttir skoraði mark ÍBV undir lok leiksins. Eyjakonur héldu þriðja sætinu með 30 stig og taka á móti Stjörnunni í lokaleik sínum föstudaginn 23. október.

ÍBV tapaði naumlega gegn Grindavík/Njarðvík

Vikan bar því með sér bæði áleitnar spurningar til bæjaryfirvalda og góð dæmi um kraftinn í samfélaginu. Við fylgjum málunum áfram og færum ykkur fréttir af því sem skiptir Eyjamenn máli.

 

Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.