Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
350 gestir nutu matar, tónlistar og skemmtunar – Hollvinasamtök Hraunbúða og Krabbavörn í Eyjum hlutu styrki – Kótilettubandið fór á kostum ásamt góðum gestum – Sigurgeir Jónsson vakti mikla kátínu
Þétt var setið í Höllinni á föstudagskvöldið þegar 350 gestir sóttu hið árlega kótilettukvöld. Aldrei hafa fleiri mætt á þennan vinsæla góðgerðarviðburð sem skipar orðið fastan sess í félagslífi Eyjamanna. Myndir: Pétur Steingrímsson
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Það var glatt á hjalla í Höllinni í Vestmannaeyjum á föstudagskvöldið þegar Kótilettuklúbburinn hélt sitt árlega góðgerðarkvöld. Aldrei hafa fleiri sótt viðburðinn en alls mættu 350 gestir til að njóta gómsætra kótiletta, fjölbreyttrar skemmtunar og góðrar samveru. Kvöldið heppnaðist í alla staði vel og var ekki síður ánægjulegt að láta gott af sér leiða. Að þessu sinni hlutu Hollvinasamtök Hraunbúða og Krabbavörn í Eyjum styrki, en bæði félögin sinna mikilvægu starfi í samfélaginu. 

Margar hendur vinna létt verk 

Þeir félagar Pétur Steingrímsson, fyrrverandi lögreglumaður, og Gunnar Gunnarsson, meistarakokkur hjá Einsa kalda hafa staðið að kótilettukvöldunum frá upphafi. Með dyggri aðstoð góðs fólks hefur þeim tekist að skapa viðburð sem á sér fastan sess í félagslífi Eyjamanna. Vinsældirnar hafa aukist jafnt og þétt. Fyrir tveimur árum mættu 320 gestir, í fyrra voru þeir 322 og nú var metið slegið þegar 350 manns fylltu Höllina. 

Eins og vera ber voru kóteletturnar í aðalhlutverki á matseðlinum. Þær voru bornar fram með öllu tilheyrandi, grænum baunum, rauðkáli og sultu. Í eftirrétt var svo gamli góði Royal-búðingurinn með karamellubragði, sem eflaust vakti ljúfar minningar hjá mörgum. 

Skemmtiatriðin voru fjölbreytt og ekki af verri endanum. Sigurgeir Jónsson sló í gegn þegar hann las eigin smásögu, Sæðisprufan, sem vakti mikla kátínu meðal gesta.  

Leynigestur kvöldsins reyndist vera Elísabet Halldóra Einarsdóttir, sem steig á svið með harmonikkuna og lék af mikilli snilld við góðar undirtektir. Sæmdarhjónin Arnór og Helga stigu einnig á svið með skemmtidagskrá sem gladdi viðstadda. 

Sungið til heiðurs Jóa Listó 

Kótilettubandið stóð svo sannarlega undir nafni og hélt uppi fjörinu af miklum krafti. Hljómsveitina skipa þeir Þröstur Jóhannsson, Dúni Geirs, Birgir Nilsen, Páll Kristinsson, Þórarinn Ólason og Kári Helgason. Þeir félagar léku af snilld og sýndu enn á ný hversu öflugir tónlistarmenn eru í Eyjum. Arnór kom einnig fram sem gestasöngvari með hljómsveitinni og flutti lagið Locomotive Breath með Jethro Tull, sem var í miklu uppáhaldi hjá Jóa Listó. Flutningurinn var tileinkaður minningu hans og setti fallegan svip á kvöldið. 

Stjáni á Emmunni lét heldur ekki sitt eftir liggja og bauð upp á óvenjulegan búnað fyrir karlpeninginn sem gæti komið sér vel í ljósi spádóma veðurfræðinga um kaldan vetur. Þar var á ferðinni sérprjónuð hlíf utan um viðkvæmustu líkamshluta karla, sem vakti mikinn hlátur og fór á metfé. Ekki veitir víst af að vera vel búinn undir vetrarkuldann! 

Þótt maturinn og skemmtunin skipi stóran sess er tilgangur kótilettukvöldsins fyrst og fremst að láta gott af sér leiða. Þar liggur styrkur þessa framtaks. Fólk kemur saman, skemmtir sér og styður um leið við mikilvægt starf í heimabyggð. 

Gleði, vinnátta og góðgerðarstarf 

Kótilettukvöldið er fallegt dæmi um þann kraft og samstöðu sem einkennir samfélagið í Vestmannaeyjum. Hugmynd sem tveir félagar hrintu af stað hefur vaxið í stóran árlegan viðburð þar sem gleði, vinátta og góðgerðarstarf fara saman. Pétur, Gunni og allir þeir sem leggja hönd á plóg eiga þakkir skildar fyrir að halda þessu einstaka framtaki gangandi ár eftir ár. 

Miðað við metmætinguna í ár er ljóst að Eyjamenn kunna vel að meta góðar kótilettur, skemmtilegan félagsskap og tækifæri til að láta gott af sér leiða. Kvöldstund sem yljar um hjartarætur og verður lengi í minnum höfð. 

Kótilettubandið fór á kostum á góðgerðarkvöldinu í Höllinni. Hljómsveitina skipa Þröstur Jóhannsson, Dúni Geirs, Birgir Nilsen, Páll Kristinsson, Þórarinn Ólason og Kári Helgason. Þeir félagar héldu uppi fjörinu og fluttu meðal annars lagið Locomotive Breath til heiðurs Jóa Listó, ásamt Arnóri sem kom fram sem gestasöngvari.

 

Gleði og góður félagsskapur. Það var glatt á hjalla í Höllinni þar sem gestir nutu gómsætra kótiletta, tónlistar og fjölbreyttrar skemmtunar. Stemningin var eins og best verður á kosið og gleðin skein úr hverju andliti.

 

Samstaða um góð málefni. Fullur salur í Höllinni er til marks um þann mikla stuðning sem kótilettukvöldið nýtur meðal Eyjamanna. Að þessu sinni runnu styrkir til Hollvinasamtaka Hraunbúða og Krabbavarnar í Eyjum. Þar fara saman góð skemmtun, vinátta og vilji til að láta gott af sér leiða.

 

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.