Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll

Þrír úrskurðir um ólögmætar uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ voru meðal helstu fréttamála vikunnar. Óveður raskaði daglegu lífi, bæjarstjórn lýsti áhyggjum af fjármögnun samgangna og loðnuráðgjöf var undir væntingum. Á léttari nótum var metmæting á kótilettukvöldi og boðið upp á spennandi íþróttahelgi. Þrjár uppsagnir úrskurðaðar ólögmætar – enn beðið svara Innviðaráðuneytið staðfesti við Eyjafréttir að þrjár uppsagnir […]
Bleik messa í Landakirkju

Bleik messa fór fram í Landakirkju í dag í tilefni bleiks októbers, þar sem sjónum var beint að baráttunni gegn krabbameini. Kristín Valtýsdóttir sagði frá starfi Krabbavarnar í Vestmannaeyjum og þeirri þjónustu og stuðningi sem félagið veitir. Þá deildi Margrét Þóra Guðmundsdóttir reynslusögu sinni með kirkjugestum. Bleikar messur eru haldnar í tengslum við bleikan október, […]
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags

Seinni ferðir Herjólfs í dag, sunnudaginn 18. október, falla niður vegna veðurs og sjólags. Um er að ræða brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga og er óskað eftir skilningi farþega. Þeir sem áttu bókað […]
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“

Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir í sameiginlegri bókun að þingmenn Suðurkjördæmis hafi ekki komið til Eyja í kjördæmaviku. Hún segir óásættanlegt að heimsóknir þingmanna ráðist af því um hvaða höfn Herjólfur sigli. Allir níu bæjarfulltrúar Vestmannaeyja standa að bókuninni, sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október. Tilefnið var yfirferð Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra á helstu […]
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó

Ein eftirminnilegasta stundin á kótilettukvöldinu í Höllinni var þegar Kótilettubandið flutti lagið Locomotive Breath til heiðurs Jóa Listó, sem borinn var til grafar föstudaginn 9. október síðastliðinn. Lagið er eitt þekktasta verk bresku rokksveitarinnar Jethro Tull og var í miklu uppáhaldi hjá Jóa. Það kom út árið 1971 á plötunni Aqualung og er samið af […]
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu

Staða stoðþjónustu skólaskrifstofu Vestmannaeyja var til umræðu á fundi fræðsluráðs 14. október. Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála fór þar yfir stöðuna með sérstakri áherslu á biðlista eftir greiningum fyrir börn. Farið var yfir umfang biðlista og hvaða greiningar skortir helst. Í niðurstöðu ráðsins er lögð áhersla á að leitað verði leiða til að stytta biðtíma, forgangsraða […]