Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Kótilettubandið minntist Jóa Listó með einu af uppáhaldslögum hans – Þröstur sonur hans rifjaði upp dýrmæta stund með föður sínum skömmu fyrir andlátið – Síðustu orð Jóa voru um glæsilegt gítarsóló
Þröstur, sonur Jóa Listó og liðsmaður Kótilettubandsins, segir áhrifamikla sögu af einni af síðustu stundinni með föður sínum. Mynd Pétur Steingríms.

Ein eftirminnilegasta stundin á kótilettukvöldinu í Höllinni var þegar Kótilettubandið flutti lagið Locomotive Breath til heiðurs Jóa Listó, sem borinn var til grafar föstudaginn 9. október síðastliðinn. Lagið er eitt þekktasta verk bresku rokksveitarinnar Jethro Tull og var í miklu uppáhaldi hjá Jóa. Það kom út árið 1971 á plötunni Aqualung og er samið af Ian Anderson. 

Þröstur, sonur Jóa og einn liðsmanna Kótilettubandsins, sagði frá því áður en lagið var flutt að tónlist Jethro Tull hefði verið stór hluti af æsku hans. Platan Aqualung hefði gjarnan verið sett á fóninn á heimilinu þegar eitthvað stóð til og tónlist sveitarinnar því tengst mörgum góðum minningum um föður hans. 

Þröstur rifjaði jafnframt upp síðustu stundirnar með föður sínum og hrósaði starfsfólkinu sem annaðist Jóa fyrir einstaka umhyggju og frábæra þjónustu undir það síðasta. 

Honum er sérstaklega minnisstæð ein af síðustu nóttunum þegar þeir feðgar lágu í sínu hvoru rúminu og hlustuðu saman á tónlist. Þar áttu þeir dýrmæta stund sem Þröstur mun seint gleyma. „Við héldumst í hendur og allt í einu segir pabbi: „Þetta var ógeðslega flott gítarsóló.“ Það var það síðasta sem ég heyrði hann segja,“ sagði Þröstur. 

Þessi fallega og einlæga frásögn gaf flutningi Kótilettubandsins á Locomotive Breath sérstaka merkingu. Með laginu heiðruðu félagarnir minningu Jóa Listó, manns sem unni rokktónlist og naut hennar allt til hins síðasta. 

 


Þessu tengt:

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni

Það var glatt á hjalla í Höllinni í Vestmannaeyjum á föstudagskvöldið þegar Kótilettuklúbburinn hélt sitt árlega góðgerðarkvöld. Aldrei hafa fleiri sótt viðburðinn en alls mættu 350 gestir til að njóta gómsætra kótiletta, fjölbreyttrar skemmtunar og góðrar samveru. Kvöldið heppnaðist í alla staði vel og var ekki síður ánægjulegt að láta gott af sér leiða. Að […]

Nýjustu fréttir

Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.