„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Allir níu bæjarfulltrúar Vestmannaeyja standa að bókun þar sem fjarvera þingmanna Suðurkjördæmis í kjördæmaviku er gagnrýnd. Eyjafréttir/ÓPF

Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir í sameiginlegri bókun að þingmenn Suðurkjördæmis hafi ekki komið til Eyja í kjördæmaviku. Hún segir óásættanlegt að heimsóknir þingmanna ráðist af því um hvaða höfn Herjólfur sigli.

Allir níu bæjarfulltrúar Vestmannaeyja standa að bókuninni, sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október. Tilefnið var yfirferð Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra á helstu verkefnum og málum frá síðasta fundi.

Þar var meðal annars fjallað um samgöngumál, fjárhagsáætlunarvinnu, almannavarnalögnina NSL-4 og kjördæmaviku. Í yfirferð bæjarstjóra kom einnig fram að Herjólfur III væri loks kominn með haffærisskírteini.

Hvetja þingmenn til að haga ferðum eins og Eyjamenn

Í bókuninni gagnrýnir bæjarstjórn að þingmenn kjördæmisins hafi ekki komið til Vestmannaeyja í kjördæmaviku.

„Það er óásættanlegt að heimsóknir þingmanna ráðist af því hvort Herjólfur sigli um Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn,“ segir í bókuninni.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að Vestmannaeyjar séu hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins og beinir skýrri hvatningu til þingmanna um skipulag heimsókna.

„Bæjarstjórn hvetur þingmenn til að skipuleggja kjördæmaviku með sama hætti og Eyjamenn þurfa daglega að haga sínum ferðum.“

Ekki er í bókuninni gerður greinarmunur á einstökum þingmönnum eða þingflokkum.

Nýjustu fréttir

Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.