Bleik messa í Landakirkju
Bleik messa var haldin í Landakirkju í dag. Myndir: Óskar Pétur

Bleik messa fór fram í Landakirkju í dag í tilefni bleiks októbers, þar sem sjónum var beint að baráttunni gegn krabbameini.

Kristín Valtýsdóttir sagði frá starfi Krabbavarnar í Vestmannaeyjum og þeirri þjónustu og stuðningi sem félagið veitir. Þá deildi Margrét Þóra Guðmundsdóttir reynslusögu sinni með kirkjugestum.

Bleikar messur eru haldnar í tengslum við bleikan október, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak þar sem athygli er vakin á krabbameini hjá konum og mikilvægi fræðslu, stuðnings og rannsókna.

Stundin var hluti af dagskrá kirkjunnar í október og var áhersla lögð á samveru, von og stuðning við þau sem hafa tekist á við krabbamein og aðstandendur þeirra.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.