Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
Herjólfur við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Seinni ferðir Herjólfs í dag, sunnudaginn 18. október, falla niður vegna veðurs og sjólags. Um er að ræða brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45.

Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga og er óskað eftir skilningi farþega. Þeir sem áttu bókað í ferðirnar eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins til að færa bókun sína.

Siglt til Þorlákshafnar á morgun

Mánudaginn 19. október siglir Herjólfur til Þorlákshafnar samkvæmt eftirfarandi áætlun:

  • Frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00.
  • Frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45.

Síðari ferð frá Vestmannaeyjum færist því frá kl. 17:00 til kl. 16:00 og síðari ferð frá Þorlákshöfn frá kl. 20:45 til kl. 19:45.

Nýjustu fréttir

Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.