Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Fræðsluráð Vestmannaeyja lýsir áhyggjum af fjölda barna sem bíða eftir greiningu og löngum biðtíma :: Ráðið hefur óskað eftir aðgerðaáætlun til að bæta stöðuna fyrir næsta fund
Horft yfir Barnaskólann og nágrenni. Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur óskað eftir aðgerðaáætlun til að stytta bið barna eftir greiningu. Mynd/skjáskot: Halldór B. Halldórsson.

Staða stoðþjónustu skólaskrifstofu Vestmannaeyja var til umræðu á fundi fræðsluráðs 14. október. Deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála fór þar yfir stöðuna með sérstakri áherslu á biðlista eftir greiningum fyrir börn. Farið var yfir umfang biðlista og hvaða greiningar skortir helst.

Í niðurstöðu ráðsins er lögð áhersla á að leitað verði leiða til að stytta biðtíma, forgangsraða úrræðum og bæta þjónustu við börn og fjölskyldur sem bíða eftir greiningu.

„Fræðsluráð lýsir yfir áhyggjum af þeim fjölda barna sem bíða eftir greiningu og þeim langa biðtíma sem hefur myndast,“ segir í fundargerðinni.

Deildarstjóra fræðslu- og uppeldismála var falið að útbúa aðgerðaáætlun sem verður lögð fram á næsta fundi ráðsins.

Ekki kemur fram í fundargerðinni hversu mörg börn eru á biðlista, hversu langur biðtíminn er eða eftir hvaða greiningum þau bíða.

Nýjustu fréttir

Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.