Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Agnar Smári Jónsson skoraði 12 mörk fyrir ÍBV B þegar hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag.
Svava Kr Myn
Svava Kristín
Grétarsdóttir

ÍBV B er úr leik í Powerade bikarnum í handbolta eftir naumt tap gegn Þór Akureyri í Vestmannaeyjum í dag. 

Það varð strax ljóst að það yrði mikill hiti í þessum leik og var spennustigið áþreifanlegt í gamla salnum í íþróttamiðstöðinni í dag. ÍBV B hafði sótt sér reynslumikla leikmenn fyrir þennan mikilvæga leik í 16-liða úrslitunum, tveir fyrrum leikmenn ÍBV, þeir Fannar Þór Friðgeirsson og Agnar Smári Jónsson. 

Þórsarar skoruðu fyrstu tvö mörkin og leit ekki út fyrir að þeir hefðu spilað leik gegn aðalliði ÍBV í gærkvöldi. Agnar Smári setti fyrstu tvö mörk Eyjamanna er hann jafnaði í 2-2 og voru Eyjamenn með undirtökin á leiknum framan af í fyrri hálfleik. Björn Viðar Björnsson varði vel í marki ÍBV B og gerði Þórsurum erfitt fyrir. Það dró síðan aðeins af  ÍBV B undir lok fyrri hálfleiks og leiddu gestirnir með einu marki þegar nokkrar sekúndur voru til hálfleiks, en Sigurbergur Sveinsson skoraði á loka sekúndunni, svo staðan var jöfn í hálfleik, 14-14. 

Þórsarar komu talsvert beittari til leiks í síðari hálfleik og lögðu þeir þar grunninn að sigrinum er þeir komust í fimm marka forystu í stöðunni 14-19. Það tók Eyjamenn tæpar tíu mínútur að skora sitt fyrsta mark í síðari hálfleik en það var Agnar Smári sem minnkaði þar muninn í 15-19. Það var meðbyr með ÍBV B um miðbik síðari hálfleiks og tókst þeim að koma leiknum niður í tvö mörk í stöðunni 19-21 og stemningin á pöllunum frábær hjá stuðningsmönnum ÍBV sem létu vel í sér heyra. 

Það voru þó gestirnir sem reyndust sterkari á lokakaflanum og fögnuðu þeir að lokum þriggja marka sigri, 27-30, og tryggðu sér þar með sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins. 

Leikur ÍBV B og Þórs var lokaleikur 16-liða úrslitanna og er því ljóst að þessi lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitin. 

ÍBV, Haukar, Afturelding, Þór Akureyri, Víkingur, FH, Valur og Grótta. 

Agnar Smári sýndi það enn og aftur að honum líður hvergi betur en í Vestmannaeyjum, þrátt fyrir að hafa ekki spilað handbolta síðan í maí þá lék hann sér að gestunum í dag og skoraði 12 mörk í öllum regnbogans litum, en þó aðallega sleggjur í samskeytin eins og honum einum er lagið. 

Guðmundur Ásgeir Grétarsson skoraði þó mikilvægt mark undir lok leiks sem virðist ekki hafa talið í lokatölum leiksins, engu að síður vel gert hjá formanni ÍBV B sem var þrátt fyrir tap, ánægður með sína menn. 

Agnar Smári: Hefur alltaf dreymt um að spila með Fannari 

Agnar Smári segir það ekki hafa verið erfitt að sannfæra hann um að koma og spila fyrir ÍBV b, hann segist hafa verið búinn að lofa Gumma að taka einn leik og stóð hann við orð sín í dag. 

“Þetta er bara geðveikt, mig er búið að kitla í fingurna að fá að spila handbolta og fá að koma aftur hingað inn í litla sal og fá bikarleik með Begga, Tedda, Sigga Braga á bekknum. Svo hefur mig alltaf dreymt um að fá að spila með Fannari, loksins fékk ég að spila með honum. Þetta er bara beautiful, það er ekki annað hægt með fullan hún en að gera sitt besta. Þetta var líka hörkuleikur í 59 mínútur og 50 sekúndur” segir Agnar Smári sem var mjög ánægður með sína endurkomu inn á völlinn í Vestmannaeyjum í dag, þrátt fyrir súrt tap. 

Gummi: Þetta var bara ljómandi fínt

Guðmundur Ásgeir segir það ekki hafa verið erfitt að skora hjá Þórsurum í dag, en hann var ánægður með að hafa sótt Agnar Smára fyrir leik. Hann segir Agnar Smára vera fyrst og fremst Eyjamann. 

“Næsti leikmaður sem við fáum er okkar maður, Magnús Óli Magnússon” sagði Gummi sem tilkynnti þar með að ÍBV b á von á góðum liðstyrk á næsta ári. Það verður þó að koma í ljós hvernig gengur að fjármagna þau kaup þar sem Agnar Smári kostaði sitt eins og kemur fram í viðtalinu við Gumma hér að neðan. 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.