Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Á loðnumiðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands ráðleggja að veiðar á komandi loðnuvertíð verði takmarkaðar við 105.773 tonn. Það er töluvert minna en upphafsráðgjöfin, sem nam rúmlega 358 þúsund tonnum. Óveður og hafís komu í veg fyrir að mælt væri á öllu útbreiðslusvæði stofnsins og því er talið að stærð hans sé vanmetin.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar í dag. Uppfærð ráðgjöf byggir á bergmálsmælingum rannsóknaskipanna Tarajoq og Árna Friðrikssonar við austurströnd Grænlands og norður af Íslandi frá 28. ágúst til 26. september.

Óveður og hafís torvelduðu mælingar

Yfirferð var talin fullnægjandi á mestum hluta rannsóknasvæðisins, en ekki náðist að mæla nyrsta hluta þess. Árni Friðriksson lenti í miklum og tíðum óviðrum, sérstaklega nyrst á svæðinu. Þar þurfti að fara í grófari yfirferð til að ná mælingum milli óveðra, áður en hafís hamlaði frekari mælingum.

Á suðurhluta svæðisins var nánast eingöngu ungloðna. Fullorðna loðnan var norðar og fannst allt norður að 71. breiddargráðu, þar sem Árni Friðriksson þurfti að hverfa frá vegna óveðurs og hafíss.

Veiðistofninn mældist tæp 560 þúsund tonn

Stærð veiðistofnsins, sem verður uppistaða veiðanna á komandi vertíð, mældist tæp 560 þúsund tonn. Að teknu tilliti til samþykktrar aflareglu og metins afráns reiknast aflamarkið 158.660 tonn.

Samkvæmt aflareglunni er ráðgjöf sem byggir á haustmælingu á veiðistofni takmörkuð við tvo þriðju hluta útreiknaðs aflamarks. Uppfærð veiðiráðgjöf er því 105.773 tonn.

Hún kemur í stað upphafsráðgjafar upp á 358.044 tonn, sem byggði á ungloðnumælingum haustið 2025. Nýja mælingin er töluvert undir þeim væntingum. Munurinn er talinn stafa að minnsta kosti að hluta af því að ekki náðist yfir allt útbreiðslusvæði loðnunnar í nýafstöðnum leiðangri.

Lokaráðgjöf eftir vetrarmælingar

Lokaráðgjöf fyrir komandi vertíð verður gefin að loknum vetrarmælingum á nýju ári og kemur þá í stað ráðgjafarinnar sem nú hefur verið birt. Ekki hefur verið ákveðið hvernig þeim mælingum verður háttað, en niðurstöður haustleiðangursins munu hafa áhrif á fyrirkomulagið.

Jafnframt mældust 65,9 milljarðar einstaklinga af ungloðnu í leiðangrinum. Samkvæmt aflareglu verður upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2027/28 því væntanlega 83.283 tonn.

Mynd 1. Leiðarlínur Tarajoq og Árna Friðrikssonar haustið 2026 (gráar línur), þéttleiki loðnu (bleikar línur þvert á leiðarlínur) og útbreiðsla hafís 23. september (litaskali).

Nýjustu fréttir

Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.