„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“

„Það sem mér finnst ekki síst merkilegt við Kveikjum neistann er hvernig samfélagið allt í Vestmannaeyjum hefur komið að verkefninu. Íþróttafélögin, skólarnir, bókasafnið og aðrir sem koma að menntun hafa tekið höndum saman. Samfélagið stendur þétt að baki verkefninu og hefur um leið tekið afstöðu til þess hvers konar skólastarf það vill sjá. Þetta er […]
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið

Hljómey og Vestmannaeyjabær hafa undirritað áframhaldandi samstarfssamning til næstu þriggja ára. Samstarfið hefur staðið yfir undanfarin þrjú ár og verður því haldið áfram næstu þrjú árin. Í tilkynningu frá Hljómey kemur fram að mikil ánægja sé með samstarfið við Vestmannaeyjabæ og að áframhaldandi stuðningur skipti starfsemi Hljómeyjar miklu máli. Í nýja samningnum fær Barna Hljómey […]
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund

Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands ráðleggja að veiðar á komandi loðnuvertíð verði takmarkaðar við 105.773 tonn. Það er töluvert minna en upphafsráðgjöfin, sem nam rúmlega 358 þúsund tonnum. Óveður og hafís komu í veg fyrir að mælt væri á öllu útbreiðslusvæði stofnsins og því er talið að stærð hans sé vanmetin. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu […]
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi

Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland á miðvikudagsmorgun vegna austan og norðaustan storms. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur vekur jafnframt athygli á óvenjudjúpri lægð í spákortum og segir ástæðu til að fylgjast grannt með þróun hennar. Viðvörun Veðurstofu Íslands gildir miðvikudaginn 14. október frá klukkan 6 til hádegis. Spáð er austan og norðaustan 15–25 metrum […]
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar

Innviðaráðuneytið hefur staðfest við Eyjafréttir að það hafi á árinu 2026 kveðið upp þrjá úrskurði þar sem uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar voru taldar ólögmætar. Úrskurðirnir féllu á 78 daga tímabili, frá 11. júní til 28. ágúst. Eyjafréttir óskuðu eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um fjölda slíkra úrskurða, málsnúmer þeirra og dagsetningar. Jafnframt var óskað eftir afritum með […]
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna

Skráning er hafin fyrir hrekkjavökuna í Eyjum sem haldin verður 31. Október næstkomandi. Íbúar sem ætla að taka á móti börnum geta nú skráð heimili sín á rafrænt kort, svo fjölskyldur geti séð hvaða hús taka þátt. Við skráningu þarf aðeins að gefa upp heimilisfang, en einnig er hægt að bæta við upplýsingum um staðsetningu […]
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu

Ráðstefnan Lagarlíf fór fram í Hörpu dagana 29. og 30. september. Laxey var meðal þeirra fyrirtækja sem sóttu ráðstefnuna í ár. Þar kom saman fólk úr fiskeldi og tengdum greinum til að miðla þekkingu, deila reynslu og efla tengsl. Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxey, flutti erindi um vegferð fyrirtækisins frá hugmynd að framleiðslu. Í erindinu fjallaði […]
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári

Bæjarráð Vestmannaeyja leggur til að útsvarsprósenta sveitarfélagsins verði óbreytt á næsta ári, eða 14,91%. Þetta kom fram við umræðu um ramma og forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 á fundi ráðsins 6. október. Samkvæmt fundargerðinni er leyfilegt hámark útsvars 14,97%. Ráðið leggur jafnframt til að við gerð fjárhagsáætlunar verði gert ráð fyrir 3,5% verðlagshækkunum. Í fundargerðinni segir […]
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri ferð dagsins í dag, mánudaginn 12. október, þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna aðstæðna í höfninni. Brottför frá Vestmannaeyjum er kl. 07:00 og frá Þorlákshöfn kl. 10:45. Ferðir kl. 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 falla því niður. Tilkynning um siglingar síðdegis verður gefin út fyrir kl. 15:00 […]