Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Bæjarráð Vestmannaeyja leggur til að útsvarsprósenta verði áfram 14,91% árið 2027 :: Gjaldskrárhækkanir í A-hluta sveitarfélagsins verði ekki meiri en 2,5%
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Bæjarráð Vestmannaeyja leggur til að útsvarsprósenta sveitarfélagsins verði óbreytt á næsta ári, eða 14,91%. Þetta kom fram við umræðu um ramma og forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 á fundi ráðsins 6. október. Samkvæmt fundargerðinni er leyfilegt hámark útsvars 14,97%.

Ráðið leggur jafnframt til að við gerð fjárhagsáætlunar verði gert ráð fyrir 3,5% verðlagshækkunum. Í fundargerðinni segir að í því felist töluverð aðhaldskrafa með tilliti til þróunar vísitölu neysluverðs.

Gjaldskrárhækkanir innan 2,5%

Við undirbúning fjárhagsáætlunar lagði bæjarráð þegar í júní til að gjaldskrárhækkanir í A-hluta sveitarfélagsins yrðu ekki hærri en 2,5%. Bæjarstjórn staðfesti þá tillögu í júlí.

Á fundinum voru lögð fram erindi frá verkalýðssamtökum þar sem óskað var eftir afstöðu bæjarins til aðgerða sem gætu stuðlað að lægri verðbólgu, lægri vöxtum og auknum efnahagslegum stöðugleika.

Einnig var lögð fram ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga um vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Samhliða er kallað eftir því að ríkið tryggi fullnægjandi fjármögnun verkefna sem sveitarfélögum eru falin.

Bæjarráð telur að með fyrri ákvörðun um hóflegar gjaldskrárhækkanir hafi sveitarfélagið þegar komið til móts við þau sjónarmið sem fram koma í erindunum.

Vinna við fjárhagsáætlun heldur áfram

Bæjarstjóri fór á fundinum yfir óskir sviðsstjóra og forstöðumanna vegna rekstrar og fjárfestinga í fjárhagsáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun.

Bæjarráð fól bæjarstjóra og sviðsstjórum að vinna áfram að þeim forsendum sem ræddar voru á fundinum.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.