Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Biggi, Íris og Gummi undirrita nýjan samning

Hljómey og Vestmannaeyjabær hafa undirritað áframhaldandi samstarfssamning til næstu þriggja ára. Samstarfið hefur staðið yfir undanfarin þrjú ár og verður því haldið áfram næstu þrjú árin.

Í tilkynningu frá Hljómey kemur fram að mikil ánægja sé með samstarfið við Vestmannaeyjabæ og að áframhaldandi stuðningur skipti starfsemi Hljómeyjar miklu máli.

Í nýja samningnum fær Barna Hljómey formlegri sess og stefna aðstandendur hátíðarinnar að því að efla dagskrána enn frekar.

„Þetta skiptir Hljómey öllu máli og ekki síst Barna Hljómey, sem fær núna sérstakan og formlegan stað í hjörtum okkar,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

Þá gefa aðstandendur Hljómeyjar jafnframt fyrirheit um frekari tíðindi í nóvember. Undirbúningur virðist þegar vera kominn vel á veg og segir í tilkynningunni að mikið hafi verið um símtöl, tölvupósta og samtöl að undanförnu.

Nýjustu fréttir

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.