Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðurland á miðvikudagsmorgun vegna austan og norðaustan storms. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur vekur jafnframt athygli á óvenjudjúpri lægð í spákortum og segir ástæðu til að fylgjast grannt með þróun hennar.
Viðvörun Veðurstofu Íslands gildir miðvikudaginn 14. október frá klukkan 6 til hádegis. Spáð er austan og norðaustan 15–25 metrum á sekúndu og snörpum vindhviðum, hvassast syðst. Talsverð rigning verður á láglendi.
Veðurstofan varar við varasömu ferðaveðri og bendir á að lausamunir geti fokið.
Í færslu á Facebook í morgun segir Einar að nýjasta spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar sýni meiri dýpkun lægðarinnar en gert var ráð fyrir í gær. Samkvæmt þeirri keyrslu gæti loftþrýstingur í lægðarmiðjunni orðið 936 hPa skammt undan Hornafirði síðdegis á miðvikudag.
Einar útskýrir að spáin geri ráð fyrir að lægðin sameinist annarri minni lægð, sem magni hringhreyfinguna og hraði dýpkuninni. Þrýstingsfallið reiknist 44 hPa á sólarhring, frá hádegi á þriðjudag til hádegis á miðvikudag.
Að sögn Einars eru svo djúpar lægðir fáséðar hér við land. Hann segir aðeins einu sinni vitað til þess að loftþrýstingur hafi mælst undir 940 hPa hérlendis í október. Það hafi verið 19. október 1963, þegar 938,4 hPa mældust á Stórhöfða. Veðrið þá hafi verið mjög slæmt og valdið sjávarflóðum.
Einar segir mjög djúpar lægðir oft valda vandræðum og stundum eignatjóni. Hann leggur þó áherslu á að enn geti þróunin breyst og að fylgjast þurfi grannt með spám næstu daga.
Appelsínugular viðvaranir hafa einnig verið gefnar út fyrir Vestfirði og Strandir og Norðurland vestra, auk gulra viðvarana fyrir fleiri landshluta.