Knattspyrnumaðurinn Sesar Örn Harðarson hefur gengið til liðs við ÍBV frá nágrönnum okkar á Selfossi. Hann er 19 ára sóknarmaður sem kemur til með að auka breidd liðsins fram á við á komandi leiktíð. Fram kemur í tilkynningu á vef félagsins að Sesar geri tveggja ára samning við knattspyrnudeildina.
Hann lék í 13 leikjum Selfoss af þeim 22 sem liðið spilaði í Lengjudeildinni í ár og skoraði eitt mark. Hann lék 3 leiki með U17 ára landsliði Íslands árið 2023 og lék 2 leiki með U19 ára liðinu í fyrra.
„Sesar er efnilegur sóknarleikmaður sem getur búið til hluti upp á eigin spýtur, ég er virkilega spenntur að byrja að vinna með honum,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, um leikmanninn. Knattspyrnuráð býður Sesar velkominn til Vestmannaeyja, segir að lokumr í tilkynningunni.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði