Eiður Atli orðinn leikmaður ÍBV
Eiður Atli í leik með ÍBV árið 2024. Mynd/IBVsport

Knattspyrnudeild ÍBV og knattspyrnudeild HK hafa náð samkomulagi um að Eiður Atli Rúnarsson verði á ný leikmaður ÍBV. Eiður lék með ÍBV á láni árið 2024 þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deild karla með góðu tímabili í Lengjudeildinni. Eiður sem er 23 ára varnarmaður lék með HK í Lengjudeildinni í ár en samtals á hann 52 leiki í þeirri deild, hann á 17 leiki í Bestu deildinni sem hann lék með HK árið 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu ÍBV.

Þar segir einnig: ,,Eiður er flottur karakter og góður leikmaður sem getur leyst flestar stöður varnarlega og miðsvæðis. Hann skrifar undir þriggja ára samning við knattspyrnudeildina. Knattspyrnuráð og þjálfarar vilja bjóða Eið velkominn til félagsins og hlakka til samstarfsins við hann”.

Nýjustu fréttir

Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“
Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu
Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld
Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.